Alþingi:
Hér fer á eftir nokkrar ræður og eða ræðubútar, þingmanna. Upphaf deilnanna er í fyrstu ræðunni hér á eftir:

Guðmundur Ari Sigurjónsson Samfylkingu: „Á örfáum dögum hefur háttvirtur þingmaður Sigurður Ingi Jóhannsson gengið ansi langt í að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir nýtt fyrirkomulag á vali í stjórnir ríkisfyrirtækja; nýtt fyrirkomulag sem kemur í ljós að hann ber fulla ábyrgð á. Þegar blaðamenn ganga svo á ráðherrann fyrrverandi reynir hann að komast undan þeirri ábyrgð með því að segja að hann hafi ekki kynnt sér málið og að embættismenn í hans eigin ráðuneyti hafi laumað breytingunni í gegn. Þegar flett er upp í gögnum Alþingis kemur alveg skýrt fram að háttvirtur þingmaður lagði fram þessa breytingu með galopin augun, mælti fyrir henni og samþykkti hana ásamt öðrum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.“
Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki: „Ég kem hér upp til þess að gera alvarlegar athugasemdir við málflutning háttvirts þingflokksformanns Samfylkingarinnar, Guðmundar Ara Sigurjónssonar, um háttvirtan þingmann Sigurð Inga Jóhannsson, sem er fjarverandi vegna alþjóðastarfa og getur því ekki svarað hér sjálfur. Þessi málflutningur sem var hér í störfum þingsins ber þess sannarlega merki að rökin í svokölluðu Landsvirkjunarmáli séu á þrotum hjá stjórnarmeirihlutanum. Í stað þess að ræða málin með upplýstum og gagnsæjum hætti, leggja fram gögn og svara efnislega þeim spurningum sem vaka fyrir þingmönnum og þjóðinni er ráðist að þeim sem spyr. Þá er valinn þingmaður sem vitað er að er fjarverandi vegna alþjóðastarfa sinna. Það er fullkomlega eðlilegt að tekist sé á um málefni Landsvirkjunar en persónulegar aðdróttanir koma ekki í stað þess að svara og gera þörfina fyrir skýringar engu minni.
Frú forseti. Höldum okkur við málefnið sjálft og sýnum hvert öðru þann sóma að vaða ekki í manninn. Ef satt reynist, sem háttvirtur þingmaður nefndi hér, að ráðuneytið hefði sett inn aukalega í frumvarp hæstvirts fyrrverandi fjármálaráðherra þá er það vissulega eitthvað sem þarf að skoða. En ég beini því til forseta að gæta þess að hér sé tekist á um málefni af virðingu og að farið sé rétt með málflutning þingmanna.“
Guðmundur Ari: „Ég kem hingað upp einfaldlega til að láta vita af því að þingflokksformaður Framsóknar hafi verið upplýstur um að ég myndi ræða um þetta málefni hér. Af hverju kem ég hingað upp og ræði þetta mál í dag? Jú, það er vegna þess að háttvirtur þingmaður fer í fjölmiðla og fullyrðir að embættismenn, sem einmitt geta ekki varið sig hér í ræðustól Alþingis, beri ábyrgð á lagasetningu sem hann flutti hér framsögu um og svaraði í andsvörum nákvæmlega varðandi þetta atriði.

Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður Framsóknar: „Mig langar að komast aðeins inn í þessa umræðu hérna. Það er rétt sem háttvirtur þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Sigurjónsson, segir hér. Hann hafði samband við mig og lét mig vita af því að hann ætlaði að ræða Sigurð Inga Jóhannsson í sínu slotti hér í störfum þingsins. Um hvað nákvæmlega var mér ekki ljóst. Við getum síðan haft skoðun á því hvort þessi ummæli hefðu mátt bíða þar til háttvirtur þingmaður var kominn til landsins. Það verður áttvirtur þingmaður að eiga við sig.“
Bergþór Ólason: „Það sem mig langar að nefna við virðulegan forseta er að þetta er auðvitað stórmerkilegt, að hér sé viljandi eða óviljandi flotin upp sú staðreynd að það virðist vera — og ég bara þakka háttvirtum þingflokksformanni Samfylkingarinnar fyrir að lyfta þessu með þessum hætti — að starfsmenn ráðuneytisins hafa, að því er best verður séð, farið gegn beinum yfirlýstum vilja ráðherra í því ráðuneyti. Þetta er eitthvað sem ég held að við verðum að skoða hér í þinginu, hvort sem það er gert á vettvangi nefndar — hver sú nefnd kann að vera kann ég ekki að leggja til á þessum tímapunkti. En ég vil þakka háttvirtum þingmanni Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir að lyfta þessu með þessum hætti.“
Guðmundur Ari: „Ég sé mig knúinn til að koma aftur upp undir þessum lið, fundarstjórn forseta, annars vegar til að vekja athygli á því að ég fór aðeins yfir skrásett gögn í viðtali við háttvirtan þingmann Sigurð Inga Jóhannsson og skrásettar ræður í skjölum Alþingis, þannig að það er lítið að svara fyrir og ekki beint orðastaður heldur er bara vísað beint í hans orð. Ég verð að koma hér upp eftir ræðu háttvirts þingmanns Bergþórs Ólasonar sem hélt í rauninni áfram að halda því fram að embættismenn hefðu laumað þessu í gegnum þingið í þessu frumvarpi þegar ég var í minni ræðu búinn að vísa orðrétt, með leyfi forseta, í framsöguræðu hæstvirts ráðherra þar sem hann fór yfir að þetta fyrirkomulag, valnefnd sem hefði tíðkast varðandi bankana, væri svo jákvætt að það ætti að útvíkka það um önnur stærri ríkisfyrirtæki. Og í greinargerðinni stendur að stærri ríkisfyrirtæki sé m.a. Landsvirkjun.“
Málinu verður eflaust fylgt eftir þegar Sigurður Ingi kemur heim.