- Advertisement -

Kínverjar millilendi á Íslandi

Utanríkismál „Næsta skref gagnvart Kína ætti að verða beint flug þaðan til Íslands og gera Ísland að miðstöð kínverskra túrista og kaupsýslumanna sem vilja ferðast til Evrópu og Ameríku. Það yrði gríðarleg lyftistöng fyrir íslensk flugfélög – og íslenska ferðaþjónustu.“ Svona skrifar Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, af því tilefni að samningar um fríverslun við Kína hefur tekið gildi.

Össur segir samninga hafa verið í frosti þegar Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, kom í heimsókn í apríl 2012. „Í aðdragandanum gengu Kínverjar mörgum sinnum eftir hvað Íslendingar vildu fá út úr heimsókninni. Svar mitt sem utanríkisráðherra var alltaf það sama: Númer eitt, tvö og þrjú viljum við samning um fríverslun. Það gekk eftir. Íslendingar náðu að lokum fram öllum markmiðum sínum. Ég skrifaði svo undir samninginn fyrir Íslands hönd í Beijing í apríl 2013. Í dag tekur samningurinn gildi.“

Össur segir þetta sögulegt. „Ísland er eina ríki Evrópu með slíkan samning. Hann er kjarabót fyrir neytendur sem geta nú keypt kínverska gæðavöru án nokkurra tolla. Fyrir útflutning er samningurinn hvalreki, sérstaklega sjávarútveg sem getur nú selt tollfrjálst inn á markað með 400 milljóna hollustudrifna millistétt með góða kaupgetu.“

Össur segir samninginn hafa orið til þess að Silicor ákvað að staðsetja 77 milljarða sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. „Þar sem 400 Íslendingar fá vel launuð störf – einungis vegna tollfrelsis gagnvart Kína. Önnur fyrirtæki munu fylgja í kjölfarið og fjögur kanna þegar landið.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Samningurinn um fríverslun við Kína er mikilvægasti samningurinn sem Ísland hefur gert sl. 20 ár. Við þurfum að nota forskotið sem hann veitir – og nota það hratt.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: