- Advertisement -

Vilja nota Íslendinga til að leika á Rússa

Utanríkismál Audun Marak, yfirmaður samtaka norskra útgerðarmanna,  segir mögulegt að hluti af síldinni geti farið um Ísland og þaðan til Rússlands. Að sögn Audun gæti verið Íslandi í hag að kaupa norska síld.

Audun hefur sagt að Rússar hafi keypt stóran hluta af þeirri síld sem Norðmenn flytja út, en með innflutningsbanninu lokist fyrir það. Audun segir að innflutningsbannið sé óheppilegt en þó megi ekki gera of mikið úr vandanum, heldur verði að finna aðra markaði fyrir fiskinn. Hann segir mögulegt að hluti af síldinni geti farið um Ísland og þaðan til Rússlands. Að sögn Audun gæti verið Íslandi í hag að kaupa norska síld.

Á vb.is segir Audun eðlilegt að Íslendingar nýti sér innflutningsbannið til Rússlands og sér ekkert siðferðislega rangt við það. Hann sér jafnframt tækifæri fyrir Norðmenn að flytja síld í meiri mæli til Íslands.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: