ff7.is: Tilraunum Evrópusambandsins til að skattleggja bandarísk tæknifyrirtæki verður svarað með takmörkunum á aðgangi að bandaríska markaðnum og sérstökum gjöldum.
Samkvæmt frétt Bloomberg eru evrópsk fyrirtæki eins og Accenture, Siemens og Spotify möguleg skotmörk.
„Ef ESB og aðildarríki ESB halda áfram að takmarka, hefta og draga úr samkeppnishæfni bandarískra þjónustuveitenda með mismunun mun Bandaríkjastjórn ekki eiga annarra kosta völ en að byrja að beita öllum tiltækum ráðum til að bregðast við þessum óréttmætu aðgerðum,“ segir viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna í færslu á samfélagsmiðlum á þriðjudag.“