- Advertisement -

Ísland leggur sitt af mörkum

Utanríkismál „Það er afar brýnt að friðaráætlunin nái fram að ganga þannig að úkraínsk stjórnvöld geti unnið að nauðsynlegum umbótum í efnahagsmálum og að þeim stjórnkerfisbreytingum sem forsetinn hefur boðað. Á fundum mínum í Kænugarði í mars undirstrikaði ég mikilvægi þess að leita allra leiða til að tryggja friðsamlega lausn á deilunum í landinu. Ég lagði líka sérstaka áherslu á lýðræðisþróun, hversu áríðandi það er að virða mannréttindi, að réttur allra þjóðarbrota í landinu séu tryggður og að efnahagslíf Úkraínu verði endurreist til hagsbóta fyrir alla landsmenn,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.  

Hann fagnar að Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, hafi lagt fram áætlun um hvernig stilla megi til friðar í landinu. Utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld styðja friðaráætlunina sem sé mikilvægur grundvöllur þess að ofbeldi í austurhluta Úkraínu verði stöðvað. Hann segir áætlunina staðfesta að Poroshenko forseti leggi höfuðáherslu á að tryggja frið og öryggi fyrir alla íbúa landsins.

Íslensk stjórnvöld skora á alla hlutaðeigandi málsaðila í Úkraínu að styðja friðaráætlunina og virða ákvæði hennar þegar í stað. Í því sambandi er yfirlýstur stuðningur rússneskra stjórnvalda við áætlunina mikilvægt skref, sem og tilkynning forseta Rússlands um að hann hafi farið fram á það við rússneska þingið að það afturkalli heimild til hernaðaríhlutunar í Úkraínu.

Gunnar Bragi segir Ísland leggja sitt af mörkum til að lægja öldurnar í Úkraínu með framlagi til eftirlitsverkefnis Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Hann segir mikilvægt að tryggja óhindraða starfsemi ÖSE og annarra alþjóðastofnana í landinu og það sé forkastanlegt að eftirlitsfólki á vegum ÖSE sé enn haldið í gíslingu í austurhluta landsins. Hann skorar á þau öfl sem standa að baki gíslatökum að leysa alla einstaklinga úr haldi þegar í stað.

 

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: