ff7.is „Ísland fengi mun sterkari stöðu sem aðili að ESB og þar með sem þátttakandi í þróun sjávarútvegsstefnu sambandsins,“ segir Maria Varteressian, fyrrverandi pólitískur skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyti Noregs, í viðtali við FF7.
Hún gaf nýverið út fróðlega bók um stöðu Noregs í Evrópusamstarfinu. Hér ræðir Varteressian með hvaða hætti stuðningur við aðild að ESB hefur aukist í Noregi, hvar andstaðan er mest og hver hitamálin eru.
Það gætir nefnilega stundum misskilnings í umræðunni hér á landi um hug Norðmanna til ESB. Margir fullyrða að aðild komi ekki til greina meðal frænda okkar og því er líka haldið fram að Norðmenn vilji ólmir komast í myntbandalagið.