- Advertisement -

Hvenær kann maður á tölvu?

Þessi spurning hvenær kann maður á tölvu kemur eflaust upp af og til hjá mörgum sem nota tölvur og snjalltæki. Ef við veltum spurningunni aðeins fyrir okkur þá er ekkert eitt svar sem kemur upp sem lokasvar. Það er ekki flókið verk að kveikja á þessum tækjum en þegar það á að fara gera eitthvað og nota tækið, þá vandast stundum málið. Ef ég  vill laga til ljósmynd hvað á ég að nota? Ef ég ætla að fara í ferðalag og panta mörg flug og búa til gott ferðalag hvernig geri ég það? Ég þarf að millifæra á erlendan reikning. Mig langar að lesa um frægan söngvara. Þarna er mögulega komið upp smá vandamál eigandi tölvunnar veit og hefur jafnvel séð að allar þessar upptalningar eru framkvæmanlegar í tölvunni en hvernig? Miðaldra eða eldri einstaklingur hringir í soninn að því að hann er að vinna í tölvufyrirtæki og kann allt. Loksins þegar sonurinn hefur tíma verður hann pirraður og hefur enga þolinmæði til að kenna fyrir utan það að hann sýnir þetta svo hratt að það er ekki vinnandi vegur að fylgja honum eftir og aðstoðin leysist upp í spjall um börnin hvernig þau hafa það. 

Þá er bara eitt eftir að það er að læra eftir kennslumyndböndum. Þau liggja út um allt og virðist vera hægt að finna flest á Youtube enn gallinn þar er sá að það skilja ekki allir leiðbeinandann því hann talar á ensku eða öðru tungumáli í kennslumyndbandinu, þeir eru margir býsna góðir og kunna sitt fag en það er nánast ekkert á íslensku. Nýverið kom á netið kennsla á íslensku um Google margir mundu halda að það sé óþarfi því það kunni allir á Google en Google er orðið svo stórt að vilji maður einfalda líf sitt og læra á eitt kerfi þá hefur Google allt sem þarf. Kennslan miðar einmitt að því að kenna á allt sem Google hefur upp á að bjóða. Flestir telja sig nokkuð góða í að leita á Google en í kennslunni er einmitt kennt að leita og flest leitarskilyrðin sýnd gæsalappir tvípunktar plús og mínus. Síðan er kennt hvernig þú heldur utanum ljósmyndir sem mjög margir eru í vandræðum með en Google er með lausnina. Ritvinnsla með raddinnslætti. Töflureiknir í anda Excel er í Google og geymsla á gögnum. Kennsluvefurinn er allur á íslensku og kennslumyndböndin líka slóðinn á vefinn er netkynning.is og það sem á eftir að koma á óvart er að það er hægt að setja íslenskan texta á Youtube myndbönd. Leiðbeinandi námskeiðanna hjá Netkynningu er margreyndur tölvukennari Ólafur Kristjánsson eða Óli tölva sem hefur oft komið fram í fjölmiðlum varðandi tölvu og tæknimál.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: