- Advertisement -

Fólk þarf ekki að vera með skírteini

Björn Leví Gunnarsson skrifaði:

Nei. Það er ekki ólöglegt að ganga skilríkjalaus. Lögreglan má krefjast þess að fólk gefi upp nafn og sanni það með skilríkjum. En það er ekki lagaleg krafa á fólk að bera alltaf á sér skilríki.

Bara svona til að hafa það á hreinu.

Heimildir lögreglu til þess að handtaka fólk eru endalaust margar og geðþóttamat lögreglunnar á því hvernig þau geta beitt þeim heimildum er mjög rúmt. En það er ekki hægt að handtaka fólk úti á götu fyrir að vera ekki með skilríki. Annars gæti lögreglan til dæmis handtekið alla mataþonhlauparana, eða fólk í sundi sem er örugglega aldrei með skilríki á sér.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er semsagt heimild fyrir lögreglu að krefja fólk um að gera grein fyrir sér og að sanna það með skilríkjum. Það er hins vegar ekki lagaleg kvöð fyrir fólk að bera alltaf á sér skilríki. Á þessu tvennu er munur.

Ástæðan er auglljós:

Gleðileg jól öll sömul! Jólin hjá okkur fóru ekki eins og planað var í þetta sinn. Hvernig myndi ykkur líða ef að klukkan 6 á aðfangadagskvöld þá væri einn fjölskyldumeðlimurinn horfinn? Það kom fyrir okkur. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er ég gift manni frá Kenía og á með honum 28 ára stjúpson frá Kenía sem heitir Brian. Einnig eigum við saman Daníel 15 ára, sem er ættleiddur frá Kenía. Á aðfangadag þá var Brian að koma úr vinnu í vesturbænum og ætlaði að ganga upp á Hlemm til að ná síðasta strætó heim. Þá kom lögreglubíll upp að honum og þau spurðu hann um skilríki. Hann hafði óvart gleymt veskinu heima og var ekki með neitt á sér. Þau sögðu við hann að það væri ólöglegt að ganga um skilríkja laus og þau gætu handtekið hann fyrir það. Svo yfirheyrðu þau hann á götunni um það hver hann væri. Hann sagði til nafns og kennitölu en þau sögðu að hann væri að ljúga. Hann bauðst þá til að koma daginn eftir á stöðina með skilríkin til að sanna hver hann væri en þau sögðu að hann myndi þá reyna að flýja. Þá spurði hann hvort þau gætu keyrt hann upp í Breiðholt svo þau gætu skoðað skilríkin hans. Þau sögðust ætla að gera það en keyrðu svo bara beint á lögreglustöðina á Hlemmi í staðinn. Sögðu að fyrst hann hefði sest sjálfviljugur upp í bílinn þá væri hann handtekinn. Þar var hann færður í móttöku fanga og í yfirheyrslu. Allt sem hann sagði sögðu þau vera lygi. Sögðu svo að hann yrði að samþykkja það að þau færu inn heima hjá honum til að skoða sig um og leita að eiturlyfjum. Ef hann myndi ekki samþykkja það þá yrði hann að gista í fangageymslu yfir nóttina. Hann sagði að hann gæti ekki samþykkt að þeir færu inn í íbúðina. Fjölskyldan væri heima að halda upp á aðfangadagskvöld. Þau yrðu að bíða fyrir utan meðan hann sækti vegabréfið. Þau tóku af honum símann og hann fékk ekki að hringja heim. Var sagt að hann gæti bara hringt í lögfræðing. Hvaða lögfræðing er hægt að hringja í á aðfangadagskvöld? Hann fékk ekki vatn að drekka og fékk ekki að fara á klósettið. Það var öskrað á hann og hann var spurður af hverju hann væri svona aggressívur þegar hann var að reyna að svara og útskýra sitt mál. Að lokum var hann færður í fangaklefa. Svo kom loksins rannsóknarlögreglumaður í málið sem sagði við félagana að þetta væri nú kannski óþarfi og að hann nennti ekki að standa í þessu. Það væri aðfangadagskvöld og hann langaði að fara heim og halda jólin. Gaf fyrirmæli um að Brian yrði keyrður heim og skilríkin skoðuð þar. Í bílnum hélt löggan áfram að reyna að fá samþykki fyrir því að fara inn í íbúðina. En inni í íbúðinni vorum við fjölskyldan í engu jólastuði, ringluð, stressuð og kvíðinn því ekki náðist í Brian. Rétt fyrir klukkan 22 um kvöldið kom löggan loksins með hann. Við vorum mjög fegin að sjá hann en brá að sjá lögguna. Þau biðu fyrir utan dyrnar en þegar ég kom fram á gang og spurði hvað væri að gerast þá kom smá fát á þau. Þau sögðust þurfa að vita hver hann væri. Á þeirri stundu skildi ég ekki hvers vegna þau þurftu að vita það. Fattaði svo að þau þurftu að vita það af því hann er svartur. Svo flettu þau í vegabréfinu að leita að innkomu stimpli frá þessu ári. Ég sagði að stimpillinn væri nú reyndar frá 2014. Brian sagði Mamma við mig og Þá bara lokaði löggan vegabréfinu og lét sig hverfa þegjandi. Við erum nú búin að lenda í ýmsu með lögguna. Daníel 15 ára er reglulega stoppaður og það hefur verið leitað á honum. Hann upplifiði það á hátíðinni túnin heima í Mosó að vera tæklaður í jörðina, fá hné í bakið og handjárnaður fyrir framan fullt af fólki. Ástæðan var að hann var að hlaupa á klósettið en löggan hélt að hann væri að flýja þá af því að hann hefði framið líkamsárás. Við höfum ekki verið að blása þetta allt saman upp, en þetta aðfangadagskvöld gekk svo rosalega langt að það er erfitt að kyngja þessu. Það væri áhugavert að heyra hvað ykkur finnst. Takk fyrir að lesa í gegnum þetta!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: