- Advertisement -

Að rétta hjálpandi hönd og sparka svo í þann sem liggur

Björn Birgisson skrifaði:

Samfélag Það er það sem ríkið er að gera gagnvart Grindvíkingum.

95% gjald fyrir húseignir er í flestum tilvikum undir markaðsvirði eins og það var orðið fyrir hamfarirnar 10. nóvember 2023.

En uppkaupin eru bjarghringur fyrir marga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Fasteignaverð hefur snarhækkað vegna…

Það er gott að geta hjálpað fólki og öll hjálp er vel þegin og fyrir hana ber að þakka.

**********

Síðan hefur það fólk farið í tímabundna leigu, mest á suðvesturhorni landsins á meðan hugað hefur verið að kaupum á húsnæði.

Ríkið kom fyrst inn með 75% leigustyrk, en hækkaði hann svo í 90% og gildir sú ákvörðun út ágústmánuð að óbreyttu.

Það er gott að geta hjálpað fólki og öll hjálp er vel þegin og fyrir hana ber að þakka.

**********

Fasteignaverð hefur snarhækkað vegna aukinnar eftirspurnar og Grindvíkingar eiga því nánast enga möguleika á að fá sambærilegar eignir fyrir uppkaupa peninginn frá ríkinu.

Þá kemur aukin skuldsetning til sögunnar, okurlán, því annað er ekki í boði og svo er gripið til sparifjár þar sem það er til.

Endalaus kostnaður fylgir hinni vonlausu stöðu sem svo margir eru óvænt komnir í.

**********

Svo kemur að því að kaupsamningar eru gerðir og Grindvíkingar sjá í hillingum að vera að eignast nýtt heimili eftir tæplega hálfs árs hrakninga og jafnvel að hafa flutt búferlum margsinnis á þeim tíma.

Þá kemur hin hjálpandi hönd til sögunnar að nýju.

En ekki til að hjálpa.

Aldeilis ekki!

Þvert á móti.

Ríkið heimtar að flóttafólkið greiði 0,8% af fasteignamati eignanna í stimpilgjald ef það vilji verða löglegir eigendur að nýju híbýlunum!

Hvað þýðir það?

  • 480 þúsund af eign sem metin er á 60 milljónir.
  • 520 þúsund af eign sem metin er á 65 milljónir.
  • 560 þúsund af eign sem metin er á 70 milljónir.

Þetta eru engir smáaurar fyrir venjulegt launafólk.

Hvað varð um hina hjálpandi hönd?

…er ekkert annað en viðbjóðsleg eftir allt sem á undan er gengið.

Innheimta á þessum skatti – fyrir fáránlega litla vinnu – er ekkert annað en viðbjóðsleg eftir allt sem á undan er gengið.

Varla þarf Þórkatla að borga stimpilgjöld vegna uppkaupanna!

Það eigum við Grindvíkingar ekki að gera heldur.

Ef einhver vitglóra og töggur eru í okkar kjörnu fulltrúum og í ríkisstjórninni þá verða Grindvíkingar undanþegnir þessu stimpilgjaldi, enda er það ekkert annað en blaut tuska framan í fólk sem ekkert hefur til saka unnið, þvert á móti verið gjöfulir og góðir þegnar þessa lands.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: