- Advertisement -

Vill að Kópavogur semji við Eflingu

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, sagði í Morgunþætti Miðjunnar, að hún vilji að Kópavogsbær semji við Eflingu hið snarasta.

Sigurbjörg Erla sagði ekki viðunandi að fólk í Eflingu væri á lægri launum sunnan við bæjarmörk Reykjavíkur og Kópavogs og það eigi að skrifa undir samninga í takt við það sem gert var í Reykjavík.

Sigurbjörg Erla benti einnig á að Kópavogur hafi samið við BSRB þar sem félagsmenn þar, sumir hverjir, sinni svipuðum störfum og fólkið sem er í Eflingu. Þetta verði að laga.

Áður en verkfalli Eflingar var  frestað stóð Sigurbjörg Erla konu, sem er félagi í Eflingu, að verkfallsbroti. Sú hafði verið fengin til að þrífa sal bæjarstjórnar fyrir bæjarstjórnarfund. Konan sagði að sér hefði verið lofað að fá greitt yfirvinnukaup tæki hún til í salnum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sigurbjörg Erla leitaði til Eflingar. Þar var sagt að engin undanþága væri til þrifa á sal bæjarstjórnar.

Á meðan við­kvæmir hópar líða fyrir þjónustu­skerðingu og Efling sýnir mikinn sveigjan­leika varðandi undan­þágur á verk­föllum fyrir þá starf­semi sem sinna bráð­nauð­syn­legri þjónustu, var virki­lega verið að að stunda verk­falls­brot til þess að þrífa að­stöðuna fyrir toppana í bæjar­stjórn. Ömurlegt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: