- Advertisement -

„Stórhættulegt og margtuggið frumvarp“

Andrés Ingi Jónsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Andrés er  lítt hrifinn af frumvarpi ráðherrans.

„Stórhættulegt og margtuggið frumvarp,“ sagði Andrés Ingi Jónsson um frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. „Þetta frumvarp vakti hörð viðbrögð þegar Sigríður Andersen birti það í samráðsgáttinni fyrir ári og þegar Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir lagði það fram á þingi. Nú þráskallast ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við að leggja fram þetta frumvarp í þriðja sinn, nú á tímum þar sem lítið ber á því eins og til að lauma því fram hjá þjóðinni,“  sagði Andrés Ingi..

„Versta breytingin í frumvarpinu er lúmsk, bara brottfall á einum staflið, og hefur það í för með sér að stór hópur fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á svo til enga von um að fá hana. Þetta er fólkið sem við sjáum reglulega í fjölmiðlum, fjölskyldur á flótta og fólk sem glímir við veikindi, barnshafandi konur, nýburar og börn í íslensku skólakerfi, fólk sem hefur fengið hæli í ríkjum eins og Grikklandi þar sem fólk býr í tjöldum árum saman án aðgangs að rafmagni og vatni, ríkjum eins og Ungverjalandi og Búlgaríu þar sem flóttafólk á á hættu að verða beitt ofbeldi af lögreglunni, ríkjum sem geta ekki tryggt því mannsæmandi aðstæður þannig að fólk leggst á flótta undan kerfinu sem á að vernda það,“ sagði Andrés Ingi.

„Það á að fella niður lagaheimildina sem gerir okkur kleift að leyfa þessu fólki að vera. Verði þetta frumvarp að lögum hefur hvorki Útlendingastofnun né kærunefnd útlendingamála einu sinni heimild til að taka mál þessa fólks til umfjöllunar. Það er ekki hægt að skreyta sig með samstöðu einn daginn en snúa svona baki við flóttafólki daginn eftir,“ sagði Andrés Ingi Jónsson.

Þú gætir haft áhuga á þessum

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: