- Advertisement -

Aukinn skjálfti í Samfylkingunni

Aukinn skjálfti er í Samfylkingunni eftir að Ágústi Ólafi Ágústssyni var hafnað. Heimildir segja að Ágúst Ólafur hafi fallist að færast niður um eitt sæti, úr því fyrsta í annað, á framboðslistanum fyrir næstu kosningar. Samstaða var um að Kristrún Frostadóttir myndi leiða listann.

Uppstillingarnefndin greiddi ekki atkvæði um málið. Heldur var það fært til stjórnar fulltrúaráðs Samfylkingarfélaganna í Reykjavík. Þar var samþykkt að standa ekki við gefið vilyrði. Heldur var Ágúst Ólafur settur í þriðja sæti. Sem hann ákvað að þiggja ekki.

Allt virðist þetta mál ætla að verða Samfylkingunni erfitt. Óvíst er hvort sættist takast eða hvað verður.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: