- Advertisement -

Bjarni fer gegn Lilju Rafneyju

Bjarni Jónsson, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvestri ætlar að keppa um forystusætið við Lilju Rafneyju Magnúsdóttur. Bjarni er sonur Jóns Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra og bróðir Ásgeirs seðlabankastjóra.

Bjarni skrifar:

Ég gef kost á mér til að leiða framboðslista VG í NV kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í 1. sæti og óska eftir stuðningi til þess í forvali hreyfingarinnar. Ég tel mig hafa víðtæka reynslu og þekkingu á málefnum landsbyggðarinnar og vil gjarna beita kröftum mínum í þágu kjördæmisins. Mín áherslumál í sveitarstjórn sem og á vettvangi landsmálanna hafa verið að styrkja innviði, treysta búsetu og fjölskylduvænt samfélag á landsbyggðinni. Í því felst öruggt aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu, menntun, gott umhverfi, samgöngubætur og fjölbreytt atvinnutækifæri við allra hæfi. Grunnstoðir atvinnulífs víða í NV kjördæmi byggja á matvælaframleiðslu og að vel sé búið að þeim atvinnugreinum og eins nýsköpun og frumkvöðlastarfi í þeim greinum, sem fleirum sem geta dafnað á svæðinu. Þá eigum við þrjá öfluga landsbyggðar háskóla og háskóla- og rannsóknasetur sem skapa svæðinu mikla sérstöðu og tækifæri sem verður að styðja með öflugum hætti og það sama á við framhaldsskólana okkar. Þá brenn ég einnig fyrir grunngildum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um náttúruvernd, jöfnuð og byggðajafnrétti, sem eiga svo sannarlega erindi til Íslendinga hvar sem þeir búa.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: