- Advertisement -

Við lifum í bananalýðveldi Valhallar

Gunnar Smári skrifar:

Sjálfstæðisflokkurinn, sem barðist fyrir því að deltaafbrigðið fengi hér landvist mun benda í allar áttir í aðalfréttatímum til að koma sökinni af sér.

Líklega erum við eina landið í heiminum þar sem stjórnvöld hafa gefið það út að vandinn vegna cóvid sé heilbrigðisstarfsfólki að kenna. Donald Trump var reyndar á þessu, að cóvid væri tilbúningur sóttvarnaryfirvalda í Bandaríkjunum milli þess sem hann sakaði Kínverja um að hafa búið þetta allt til, lína sem Morgunblaðið er enn á (eina blaðið í heiminum sem enn styður Trump). Hér svarar forstjóri Landspítalans alvarlegum ásökunum fjármálaráðherrans frá í gær. Svona verður þetta næstu daga. Sjálfstæðisflokkurinn, sem barðist fyrir því að deltaafbrigðið fengi hér landvist mun benda í allar áttir í aðalfréttatímum til að koma sökinni af sér og svo fær fólkið sem verður fyrir þessum ósköpum að verja sig í áttundu frétt eða fréttayfirliti á hálfa tímanum. Við lifum í bananalýðveldi Valhallar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: