- Advertisement -

Samstarf við ESB um sjávarútvegsmál

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skrifaði:

Viljayfirlýsing sem við Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins skrifuðum undir í síðustu viku sýnir gagnkvæman vilja okkar um samstarf til að tryggja sjálfbærar fiskveiðar og takast á við fjölmargar áskoranir tengdar hafmálum í Norður-Atlantshafi bæði í dag og til framtíðar.

Yfirlýsingin gerir ráð fyrir fyrir auknu og víðtækara samstarfi milli ESB og Íslands um ýmis atriði tengd hafinu, s.s. sjálfbærum fiskveiðum, vísindarannsóknum og verndun hafsins. Einnig er stefnt að auknu samstarfi við verndun líffræðilegs fjölbreytileika og orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi.

Sjá frétt hér.

Í sömu ferð fundaði ég líka með Elisabeth Werner ráðuneytisstjóra landbúnaðarmála þar sem við áttum gott samtal um áskoranir og tækifæri í landbúnaði, ekki síst á köldum strjálbýlum svæðum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: