Ármann Kr. Ólafsson, fyrrum þingmaður og bæjarstjóri í Kópavogi, skrifaði:
„Hvað hefur ríkisstjórnin gert til þess að lækka vexti. Stutta svarið er EKKERT. Hér hækkar vísitalan þrátt fyrir himinháa vexti og sífellt sterkari krónu, sem ætti að lækka vöruverð. Hér hækkar matvöruverð, hér hækkar annað vöruverð og þjónusta, hér hækkar rafmagn og hitaveita, hér hækka skattar sem dregur úr samkeppni og svo mætti lengi telja. Það furðulegasta við þetta allt saman er að þessar hækkanir allar „hækka“ líka fylgi ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin verður að leggjast á árarnar með Seðlabankanum svo hægt sé að lækka vexti. Hvernig ætlaði forsætisráðherra að negla niður vextina og þar með verðbólguna, hvert var planið? Gætum við fengið svör við því?“