En þegar það hallar á verkafólk, þá er ekkert verið velta hlutunum fyrir sig heldur framlögum til jöfnunar á örorkubyrði einfaldlega sópað út af borðinu – og svo kalla menn þetta „samtryggingu“.
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, er ekki sáttur með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar:
„Enn og aftur ráðist á lífeyrisréttindi verkafólks!
Í fjárlagaáætlun er framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða skorið niður í 4,6 milljarða króna árið 2025 – og fellur svo alveg niður um næstu áramótin.
Hvað ef þetta bitnaði á Alþingi?
Þegar það gerist þarf að skerða réttindi verkafólks enn frekar. Þetta er að gerast á vakt stjórnmálaflokka sem segjast standa fyrir félagshyggju, réttlæti og jöfnuði.
Staðreyndir sem enginn fær hnekkt
Verkamenn greiða sömu prósentu í iðgjöld og aðrir, sömu krónutölu af sínum launum.
Samt fær verkafólk allt að 15% lakari réttindi en fólk í öðrum sjóðum.
Munurinn á LÍV og Gildi sýnir þetta svart á hvítu:
500.000 kr. á mánuði í LÍV.
425.000 kr. á mánuði í Gildi.
Það er 75.000 kr. á mánuði, 900.000 kr. á ári, eða 14,4 milljónir króna yfir meðalævi frá 67 ára aldri.
Þeir sem bera þyngstu byrðarnar á vinnumarkaði – líkamlegt verkafólk – tapa mest.
Hvað ef þetta bitnaði á Alþingi?
Trúið mér: ef lífeyrisréttindi Alþingismanna væru 15% lakari en réttindi annarra launamanna, þá væri búið að leiðrétta það fyrir löngu.
En þegar það hallar á verkafólk, þá er ekkert verið velta hlutunum fyrir sig heldur framlögum til jöfnunar á örorkubyrði einfaldlega sópað út af borðinu – og svo kalla menn þetta „samtryggingu“.
Skömmin er ykkar. Hafi stjórnvöld og Alþingi skömm fyrir að ráðast með þessum hætti á lífeyrisréttindi verkafólks.
Við ætlum ekki að sitja hljóð. Við munum mæta þessu af fullri hörku.