- Advertisement -

Ólíðandi aðstæður á húsnæðismarkaði og vanefndir stjórnvalda í málaflokknum

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar skrifaði:

Hér má lesa grein eftir okkur Stefán Ólafsson sem birtist í helgarútgáfu Morgunblaðsins. Þar ræðum við ólíðandi aðstæður á húsnæðismarkaði, vanefndir stjórnvalda í málaflokknum og þau nauðsynlegu skref sem verður að stíga hafi ríkisstjórnin nokkurn áhuga á því að bæta ástandið sem að bitnar mest á verka og láglaunafólki, þeim sem með vinnu sinni knýja áfram hagvöxtinn og halda uppi umönnunarkerfum þjóðfélagsins. Að sjálfsögðu þarf að byggja fleiri íbúðir en það tekur tíma. Því þarf bráðaaðgerðir líkt og þær sem að hér er farið yfir:

Takmarka þarf verulega heimildir til að nýta íbúðir til skammtímaleigu (Airbnb o.fl.) á höfuðborgarsvæðinu. Það eru þær aðgerðir sem virka hraðast til að slá á misvægi framboðs og eftirspurnar sem orsakar óeðlilegar verðhækkanir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ísland þarf að nálgast grannríkin…

Koma á alvöruhömlum á verðhækkanir leigu (þ.e. leigubremsu). Ísland þarf að nálgast grannríkin í þessum efnum svo um munar. Leigubremsa er líka mikilvægt verkfæri í baráttunni við verðbólguna. Stýra þarf betur nýtingu íbúðarhúsnæðis til búsetu og þrengja að nýtingu þess sem brask- og fjárfestingarleiðar fyrir efnafólk. HMS bendir á ýmsar leiðir til þess í skýrslunni Vegvísir leigumarkaðar 2025.

Efla þarf húsnæðisstuðning hins opinbera, bæði til að auka enn frekar aðgengi lægri tekjuhópa að húsnæði á vegum óhagnaðardrifinna aðila og almennt til að létta þungar byrðar heimila vegna húsnæðiskostnaðar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: