Kristinn Hrafnsson skrifaði:
Eftir árásina 11. septmber 2001 hófst stríðið gegn hryðjuverkum ,,war on terror” m.a. með stríðinu í Afganistan sem stóð í tvo áratugi (og breytti engu) og innrásinni í Írak 2003 sem rústaði landinu og ól af sér öfgar ISIS. Hroðaleg hryðjuverk voru framin á Vesturlöndum á næstu árum t.d í Madrid, Brussel, London, Berlin og París sem rekja má til öfgafullra islamskra hópa (Al-Qaeda, ISIS). Á sama tímaskeiði voru einnig dæmi um skelfileg hryðjuverk framin af hægri öfgamönnum, það mannskæðasta af Breivik í Utoya í Noregi.
Frá 2017 hefur myndin verið að breytast en sjálfsmorðsárás ISIS liða á Arena tónleikahöllina í Manchester var það ár (22 dóu). Hægri öfgar voru að baki Christchurch árásinni í Nýja Sjálandi 2019 (51 látinn). Þessi tvö tilvik skýra toppa þessara ára (en 2017 voru einnig fjórar aðrar mannskæðar árásir ISIS í Barcelona, New York, London og Stokkhólmi).
Á liðnum árum hefur hryðjuverkum, frömdum á grunni hægri öfga, rasisma, úlendingaandúðar, kvenhaturs og islamafóbíu farið fjölgandi. Svo er alltaf spuring um skilgreiningar. Sem dæmi er skotárás Richard Anderson á skólann í Örebro í febrúar ekki skilgreind sem hryðjuverk af sænskum yfirvöldum en í skólanum var verið að kenna fullorðnum nýbúum. Anderson myrti 10. Ef þetta ódæði væri skilgreint sem hægri öfga hryðjuverk væru súlurnar rauðu og bláu álíka háar fyrir 2025.
Rétt er einnig að geta mannskæðra skotárása í skólum í Bandaríkjunum en þau eru næstum aldrei skilgreind opinberlega sem hryðjuverk (þó að þau séu oftar en ekki kölluð ,,innlend hryðjuverk” (domestic terrorism) er eiginlega aldrei ákært á þeim grunni lagalega. Alls hafa 149 verið myrtir í skotárásum í bandarískum skólum 2017-2025. Það er hærri tala en fjöldi myrtra í öllum hryðjuverkum öfga islamista á Vesturlöndum á sama árabili og einnig fleiri en hægri öfgamenn hafa myrt í hryðjuverkum sömu ár.
Þetta er sett fram með öllum eðlilegum fyrirvörum um áreiðanleika en dregur fram meginlínur sem eru þær, að veruleiki síðustu fimm ára sýnir ekki heim okkar Vesturlandabúa á heljarþröm hryðjuverka og að ef eitthvað er að óttast, er það ekki síður heimaalið hægri öfga hatur en aðrar öfgahugmyndir.
