- Advertisement -

Ég þykist vita að Hildur Björnsdóttir verði góður borgarstjóri

Stjórnmál: Brynjar Níelsson skrifar:

„Þá er það ljóst að ég verð í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Ég hef búið í Reykjavík alla ævi og man tímana tvenna. Skynja að borgarbúar vilja breytingar og telja að hugmyndafræði ráðandi meirihluta síðustu þrjá áratugi hafi siglt í strand í öllum helstu málaflokkum. Ég gat því ekki setið hjá þegar eftir því var leitað að ég tæki sæti á listanum.

Þá er ég mjög ánægður hvernig sjálfstæðismönnum tókst að raða á listann. Þarna er fjölbreyttur hópur af reynslu miklu fólki með ólíkan bakgrunn. Oddviti flokksins í Reykjavík hefur verið mjög vaxandi og það var hrein unun að hlusta á hana á Sprengisandi áðan þegar þáttastjórnandinn gerði sem hann gat til að gera lítið úr lista Sjálfstæðisflokksins. Þá fór hún vel yfir það helsta sem gera þarf í borginni í nánustu framtíð af mikill yfirvegun og styrk.

Ég er nokkuð sannfærður um að breytingar, sem ákall er um, verði ekki nema Sjálfstæðisflokkurinn komi sterkur út úr komandi kosningum. Og ég þykist vita að Hildur Björnsdóttir verði góður borgarstjóri. Hún hefur orkuna og kraftinn sem til þarf og að auki skynsemi og raunsæi sem öllum leiðtogum er nauðsynleg. Held að borgarbúar geti örugglega munað nafn hennar.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: