- Advertisement -

„Merkur maður er genginn“

Andlát: Ingibjörg Sólrún skrifaði þessu fínu grein:

„Stórleikari er óvænt stiginn út af sviðinu. Hann gegndi mörgum mikilvægum hlutverkum og lét alltaf um sig muna þó að fólk væri missátt við hann eins og gengur.

Við vorum stundum samtíða á sviðinu og þannig var ég fyrst kosin i borgarstjórn 1982 þegar hann varð borgarstjóri og svo var ég kosin á þing 1991 þegar hann varð forsætisráðherra. Hann var seðlabankastjóri þegar ég var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Geirs Haarde á árunum 2007-2009. Öll þessi ár háðum við Davíð marga pólitíska hildi og hann á án efa stærstan þátt í þeirri þjálfun sem ég sem ung kona fékk í pólitískum skylmingum í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Við áttum ekki pólitíska samleið og gekk stundum erfiðlega að láta okkur lynda við hvort annað en það voru aldrei nein undirmál. Davíð var hreinskiptinn, hafði skömm á hvers kyns óhreinlyndi og duldi ekki hug sinn. Okkar skylmingar höfðu aldrei nein áhrif á hug hans gagnvart Hjörleifi manni mínum en þar ríkti gagnkvæm væntumþykja frá menntaskólaárunum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við þetta brotthvarf sendum við Ástríði, Þorsteini og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Merkur maður er genginn.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: