- Advertisement -

Einstaka Ísland

„Það þurfa því engin flugskeyti að lenda á heimilum Íslendinga, til þess að þeir missi heimili sín í stríðsástandi, allt með löglegum hætti.“ 

Jón Trausti Reynisson.

Heimildin: Jón Trausti Reynisson skrifar flotta grein í nýjasta tölublað Heimildarinnar. Hér er stuttur og velskrifaður kafli úr greininni, kafli um það sem skiptir okkur svo miklu máli að við verðum öll að berjast gegn þessu:

„Húsnæði er stærsta fjárfesting og gjarnan meginhluti sparnaðar almennings á Íslandi. Árið 2024 voru 78 prósent eigin fjár Íslendinga bundin í húsnæði. Mikill meirihluti húsnæðislána, eða 65 prósent, eru nú verðtryggð.

Ísland er eina landið sem veitir bönkum kerfisbundinn aðgang að eignum almennings í gegnum verðtryggingu húsnæðislána, líkt og um öfugan naflastreng sem nemur næringuna á brott frá veikari aðilanum frekar en að veita hana, þegar eitthvað bjátar á. 

Þú gætir haft áhuga á þessum
„Núna stöndum við frammi fyrir því að verðtryggingin – sem át upp eignir almennings í síðasta efnahagshruni og kom 25 þúsund fjölskyldum í neikvæða eignastöðu 2010 – virkist á ný, allt eftir því hvað forseta Bandaríkjanna dettur í hug að gera.“ 

Annars staðar eru fasteignalán óverðtryggð og vextirnir þónokkuð langt undir þeim 8% sem nú eru hagstæðustu húsnæðislánavextir á Íslandi.

Þetta þýðir að þegar Bandaríkin stofna til stríðs, með þeim afleiðingum að olíuverð hækkar, renna áhrifin beint inn í eignastöðu almennings á Íslandi. Ekki aðeins hækkar bensínverð á Íslandi, sem leiðir til verðbólgu vegna mælinga á því, heldur hækkar kostnaður við flutninga, flugfargjöld og til lengri tíma ýmsa framleiðslu sem krefst eldsneytis. Þetta er fyrir utan öll ófyrirsjáanleg áhrif stríðs, en þau eru sögulega þekkt fyrir að valda verðbólgu.

Það þurfa því engin flugskeyti að lenda á heimilum Íslendinga, til þess að þeir missi heimili sín í stríðsástandi, allt með löglegum hætti.

Í efnahagslegum hremmingum verðbólgubála áttunda og níunda áratugarins sköpuðum við vítahringsvél verðtryggingar. Hún virtist loksins hafa verið stöðvuð þegar Seðlabankinn ákvað að lækka vexti gríðarlega mikið til að bregðast við efnahagslegri kælingu Covid-faraldursins, sem ýtti upp fasteignaverði og átti þannig þátt í að stórauka verðbólgu, samhliða innfluttri verðbólgu vegna röskunar á aðfangakeðjum.

Núna stöndum við frammi fyrir því að verðtryggingin – sem át upp eignir almennings í síðasta efnahagshruni og kom 25 þúsund fjölskyldum í neikvæða eignastöðu 2010 – virkist á ný, allt eftir því hvað forseta Bandaríkjanna dettur í hug að gera.“ 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: