
Umræðan: Ríkisfjármál:
Mörg hafa tjáð sig um vonlitla stöðu efnahagsmála. Sem opinberaðist enn og aftur í morgun þegar Seðlabankinn sá sér ekki annað fært en að hækka vextina. Hækkun ýmissa opinberra gjalda vegur þungt í aukinni verðbólgu. Því má segja að hagfræðingarnir í ríkisstjórninni hafi mátt og átt að gera betur.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er í hópi þess fólks sem hefur tjáð sig um þessa aumu stöðu sem þjóðin er flækt í. Lesum grein Guðrúnar:

„Enn ein staðfestingin á því að ríkisstjórnin ræður ekki við verkefnið.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í morgun í 7,5% og tveir nefndarmenn vildu ganga enn lengra.
Ríkisstjórnin sem lofaði að berja niður verðbólgu og vexti hefur ekki náð neinum árangri í efnahagsmálunum og það eru heimilin í landinu sem greiða reikninginn.
Ríkisstjórnin hefur haft fjölmörg tækifæri til að gera betur. En þvert á ráðleggingar hefur hún hækkað gjaldskrár, aukið ríkisútgjöld og ekkert hagrætt á móti. Þetta hefur leitt til aukinnar verðbólgu á sama tíma og atvinnuleysi fer vaxandi.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur með heimilunum og kallar eftir ábyrgri hagstjórn, ráðdeild í ríkisrekstri og raunverulegum aðgerðum til að ná niður verðbólgu og vöxtum.“