Á fjölsóttum aðalfundi VR í gærkvöldi var samþykkt ályktun sem tekur á þessum þáttum og leggur línurnar fyrir lausnamiðaða nálgun í erfiðri stöðu.
halla Gunnarsdóttir formaður VR.
Umræðan: Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, skrifaði eftirfarandi:

„Ný mæling á vísitölu bendir til þess að olíufyrirtækin séu byrjuð að stunda forvirkar hækkanir; þau skila heimsmarkaðsverðhækkunum löngu áður en olíutunnurnar geta náð landi. Það er ekki hægt að bíða með að allar þessar hækkanir skelli á okkur, það verður að innleiða einhvers konar verðþak á olíu. Það er jafnframt sláandi að matvara heldur áfram að hækka milli mánaða. Við höfum aldrei fengið fullnægjandi skýringar á því hvers vegna matvara hefur þurft að hækka mánuð eftir mánuð yfir langt tímabil.
Góðu fréttirnar eru að hækkunin er ekki á jafn breiðum grunni núna og síðast og það er hægt að grípa til aðgerða til að takmarka skaðann. Hér verður að taka á því sem við ráðum við sjálf og stöðva verðhækkanir og afturkalla gjaldskrárhækkanir. Bankarnir og stóru fyrirtækin, sem hafa verðmótandi áhrif, eiga að draga úr arðsemiskröfum sínum tímabundið. Þetta, ásamt því að stjórnvöld láti af atlögu sinni gegn réttindum vinnandi fólks og keyri á umbætur í húsnæðismálum, getur skapað fyrirsjáanleika fyrir fólk og fyrirtæki, að því marki sem hann er mögulegur í alþjóðlegu umróti, og þannig haft jákvæð áhrif inn í haustið þegar forsendur kjarasamninga bresta.
Á fjölsóttum aðalfundi VR í gærkvöldi var samþykkt ályktun sem tekur á þessum þáttum og leggur línurnar fyrir lausnamiðaða nálgun í erfiðri stöðu.
Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd við þessar aðstæður.“