- Advertisement -

Sveitarsjóði blæðir eftir lokun PCC

Hefur þessi hagræðing meðal annars náð til Sundlaugarinnar á Húsavík en afgreiðslutími hennar hefur verið skertur.

Umræðan: Eftirfarandi frétt er fengin af mbl.is:

Hluta af framkvæmdum og fjárfestingum sveitarfélagsins Norðurþings sem fyrirhugaðar voru á þessu ári hefur verið frestað til næsta árs. Ákvörðun þess efnis var tekin á sveitarstjórnarfundi í vikunni en tillagan hafði áður verið samþykkt í byggðarráði. Fimm sveitarstjórnarfulltrúar greiddu atkvæði með ákvörðuninni en þrír gegn henni. Einn sat hjá.

Ástæðan er bág fjárhagsstaða sveitarfélagsins en kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka fór í rekstrarstöðvun á síðasta ári og hefur Norðurþing orðið af miklum tekjum vegna þess.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gripið hefur verið til hagræðingaraðgerða að upphæð 120 milljónir króna og áformuð er 130 milljóna króna hagræðing til viðbótar. Hefur þessi hagræðing meðal annars náð til Sundlaugarinnar á Húsavík en afgreiðslutími hennar hefur verið skertur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: