- Advertisement -

Fáir kennsludagar í íslenskum grunnskólum

Ljóst er að nemendur í íslenskum grunnskólum njóta færri virkra kennslustunda og færri kennsludaga en jafnaldrar þeirra í flestum Evrópuríkjum og er munurinn oft sláandi.

Stjórnaráðið: Fjöldi kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum á Íslandi er einn sá minnsti í Evrópu. Á sama tíma eru útgjöld á hvern nemanda þau hæstu innan OECD en árangur nemenda í íslenskum grunnskólum er langt undir meðaltali OECD í PISA-rannsókninni.

„Við erum ekki að standa okkur nógu vel þegar kemur að menntun barna okkar,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. „Við borgum meira en kennum og uppskerum minna en þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Þessu vil ég snúa við og skoða m.a. fjölgun kennsludaga með sveitarfélögum og skólasamfélaginu.“

Fáir kennsludagar

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nýtt vefviðmót Eurydice (The School Year in Europe: Recommended compulsory instruction time and holidays) ber saman skóladaga, kennsludaga og heildarfjölda kennslustunda í virkri kennslu í grunnskólum innan Evrópu. Samanburðurinn sýnir að grunnskólanemar í íslenskum grunnskólum fá hvað fæsta kennsludaga og kennslustundir á hverju skólaári.

Skóladagar á Íslandi eru 180 dagar samkvæmt grunnskólalögum og fjöldi kennsludaga er áætlaður 170 dagar. Aðeins, Búlgaría, Kýpur, Grikkland og Malta eru með færri kennsludaga.

Mynd: Fjöldi kennsludaga á ári í grunnskólum eftir menntakerfum þátttökuríkja Eurydice.

Kennsludagar eru færri en á Norðurlöndunum

Skólaárið er stutt á Íslandi borið saman við önnur Norðurlönd. Skólaárið er 30 dögum lengra í Danmörku, 20 dögum lengra í Noregi, 17 dögum lengra í Finnlandi og 8 dögum lengra í Svíþjóð.

Dönsk börn fá 40% fleiri kennslustundir en þau íslensku

Alls eru 13 evrópsk menntakerfi með 10 ára skyldubundið grunnskólanám og teljast því sambærileg við Ísland þegar kemur að kennslustundum á grunnskólagöngunni. Lögbundinn kennslutími yfir grunnskólagönguna í þessum ríkjum nær frá 7.616 klukkustundum á Íslandi upp í 10.600 klukkustundir í Danmörku.

Það þýðir að börn í íslenskum grunnskólum fá sem nemur fjórum kennsluárum færri en dönsk börn á sinni grunnskólagöngu.

Útgjöld endurspegla ekki árangur

Íslenskt grunnskólakerfi er kostnaðarsamt í alþjóðlegum samanburði. Útgjöld til grunnskóla og framhaldsskóla nema 5,6% af landsframleiðslu samanborið við 4,7% meðaltal OECD. Þegar horft er til útgjalda á hvern nemenda í grunnskóla þá er Ísland á toppnum.

Árangur 15 ára nemenda í íslenskum grunnskólum í PISA 2022 er hins vegar óumdeilt verulega undir OECD-meðaltali í stærðfræði, lesskilningi og náttúrufræði.

Ríkisstjórn kynnt staðan

Ljóst er að nemendur í íslenskum grunnskólum njóta færri virkra kennslustunda og færri kennsludaga en jafnaldrar þeirra í flestum Evrópuríkjum og er munurinn oft sláandi.

Mennta- og barnamálaráðherra hefur kynnt þessa stöðu fyrir ríkisstjórn.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: