Umræðan: Guðmundur Þ. Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, skrifaði:

„Ánægjulegt að sjá seðlabankastjóra koma fram með, sömu ábendingar og ég hef verið með, á aðalfundi bankans í dag. Ég hef verið að skrifa um og benda á þær efnahagslegu hættur sem gætu skapast við inngöngu í Evrópusambandið með vinnumarkaðinn eins og hann er.
Ég hef ítrekað bent á að við verðum að taka málefnalega umræðu um það sem við þurfum að laga hjá okkur svo ekki fari illa ef við ætlum inn í Evrópusambandið. Verði það ekki gert er betra að sleppa því að sækja um aðild. Það er líka möguleiki að við þurfum enga Evru og Evrópusamband ef við komu aga á okkar mál.“
Þú gætir haft áhuga á þessum