„Þetta heitir í boltanum „hat trick“: Ríkisstjórnin nær að flækja regluverkið, hækka skattana og skaða samkeppnishæfnina.“
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Alþingi: Hér er brot af ræðu sem Guðlaugur Þór Þórðarson flutti um kílómetragjaldið:
„Við erum hér í fjárlögum að kroppa, við sem sitjum í fjárlaganefnd, í milljónir, stundum 10 eða 20 milljónir, stundum 100 milljónir. Það er bara erfitt. En í einni svipan skella menn 1,5 milljörðum kr. á eina atvinnugrein í flókið regluverk. Já, virðulegi forseti, það er ekki hægt að skrökva upp á þessa ríkisstjórn.
Og ég verð að segja: Hefði ekki bara verið heiðarlegra að hækka skattana, ef menn vilja endilega, án þess að þurfa að fara í þetta flækjustig? Er þetta ekki alveg nógu erfitt fyrir bílaleigurnar þó að þú setjir ekki 1,5 milljarða í flækjustig ofan á allt saman, þetta er bara svona hugmynd.
Það er öllum ljóst að ríkisstjórnin ætlar að svíkja kosningaloforð sín og er búin að því þegar kemur að því að hækka skatta. Það er farið. En þarf hún endilega líka að svíkja loforðið um að ætla að einfalda kerfin? Getur hún ekki haldið sig við eitthvert eitt loforð sem hún var með, svona reynt að hanga í því aðeins lengur? Bara fundið eitt loforð sem allir heyrðu og allir skildu og reynt að hanga í því. Þarf að taka þetta allt í einu?
Ef það er markmiðið að taka þetta allt í einu þá er þetta frumvarp til þess gert að ná fram skattahækkunum á venjulegt fólk, skaða samkeppnisstöðu og samkeppnishæfni íslensku þjóðarinnar og flækja regluverk. Þetta heitir í boltanum „hat trick“: Ríkisstjórnin nær að flækja regluverkið, hækka skattana og skaða samkeppnishæfnina,“ sagði Guðlaugur Þór.