- Advertisement -

Þórdís virðist gefa minni gaum að átakalínum í stjórnmálum

En nú hefur ÞKRG ákveðið að rétta Degi líknandi hönd þannig að e.t.v. geti orðið um sameiginlega pólitíska upprisu beggja að ræða.

Jón Magnússon.

Umræðan: Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrum þingmaður er ekki sáttur við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, vegna orða hennar og að hún stofni til hlaðvarps með Degi B. Eggertsson Samfylkingu. Dagur er ónáð hjá flestu Sjálfstæðisfólki.

Jón skrifar:

„Í sunnudagsblað Mbl ritar Þórdís Kolbrún Reykjförð Gylfadóttir pistil að vanda, þar sem hún vísar ítrekað í þann merka mann Birgi Kjaran, þar sem hann ræðir um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir skoðunum annarra og leita sátta sé það mögulegt.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Birgir Kjaran.

Á sama tíma og Birgir hvatti til sátta, var stefna hans einörð í landsmálum og utanríkismálum. Sú mannúðlega markaðshyggja, sem hann barðist fyrir átti mikinn þátt í að Sjálfstæðisflokkurinn varð það stórveldi í íslenskri pólitík sem hann var.

Þórdís virðist gefa minni gaum að átakalínum í stjórnmálum, sem Birgir dró svo skilmerkilega upp og það staðfestist í þeirri frétt, að hún ásamt Degi B. Eggertssyni áður borgarstjóra ætluðu að reka saman hlaðvarp. Einhverjir nudduðu á sér augun og spurðu hvort fyrsti apríl væri seint á ferðinni þetta árið.

Þó Birgir Kjaran talaði jafnan fyrir virðingu fyrir skoðunum annarra og nauðsyn þess að leita samkomulags, þá þýddi það aldrei að samsama sig með skoðunum andstæðinganna og/eða gera þær að sínum.

Raunar hefur ítrekað verið bent á það á undanförnum árum, að svo virtist sem forustufólk hefðbundinna stjórnmálaflokka leitaðist við að flytja nánast sömu ræðurnar og ekki væri hægt að greina á milli hver stæði hvar í pólitík. Á erlendum vettvangi fælist allt í að klappa hvert öðru á bakið og flytja sömu ræðurnar með tilbrigðum.

Svo virðist sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í fjölmennasta kjördæmi landsins hafi ákveðið að tileinka sér það ofannefnda þegar hún nú fer í slagtog með fyrrum borgarstjóra, sem stýrði Reykjavíkurborg með þeim hætti, að jafnvel hans eigin flokkur Samfylkingin er á harðahlaupum frá honum og leitaði uppi áður óþekktan mann til að leiða framboðið í Reykjavík til að hægt yrði sem auðveldast að breiða yfir nafn og númer Dags B. Eggertssonar.

Nú hefur ÞKRG ákveðið að rétta Degi líknandi hönd.

En nú hefur ÞKRG ákveðið að rétta Degi líknandi hönd þannig að e.t.v. geti orðið um sameiginlega pólitíska upprisu beggja að ræða. En aðildin að Evrópusambandinu sýnist vera sú pólitíska snertitaug sem sameinar nú hug þeirra og hönd.

Í því sambandi yfirsést fyrrum varaformanni Sjálfstæðisflokksins grundvallaratriðið í hugsjónabaráttu Birgis Kjaran. En Birgir sagði m.a. í grein sinni Sjálfstætt viðhorf, leit að lífshamingju:

„Við (sjálfstæðismenn) teljum því öll þau öfl, er sljóvga vilja íslenska þjóðarvitund, tvístra vilja þjóðareiningu, lítilsvirða þjóðmenninguna og á einn eða annan hátt skerða andlegt, efnahagagslegt eða stjórnmálalegt sjálfræði þjóðarinnar, þjóðhættuleg og þjóðfjandsamleg og snúumst gegn þeim sem höfuðandstæðingi, minnugir orða Einars Benediktssonar: „Ef þjóðin gleymir sjálfri sér og svip þeim týnir er hún ber er betra að vanta brauð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: