- Advertisement -

„Hærri stýrivextir, meira atvinnuleysi, minni hagvöxtur“

Alþingi: Eftir að Seðlabankinn hækkaði vexti sagði Sigurður Ingi Jóhannsson á Alþingi:

„Á vef RÚV birtist þessi fyrirsögn: Hærri stýrivextir, meira atvinnuleysi, minni hagvöxtur. Þetta er dómurinn eftir tæplega eitt og hálft ár ríkisstjórnar með Kristrúnu Frostadóttur í forystu, ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, sem ætlaði að slá niður verðbólgu með sleggju og lækka vexti. Við erum að ræða hér hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu og viðræður sem þangað eru að fara.

Aðildarsinnar, margir í meiri hlutanum, fjalla um að þar sé svo frábært að vera og við munum bara fá lægri verðbólgu og lægri vexti. En er það svo? Við þekkjum að hvert land er með sína eigin neyslukörfu. Ef við förum og skoðum núna inni á Eurostat hvernig verðbólgan er miðað við mælingu sem Evrópski seðlabankinn mælir, sem er auðvitað ekki hin íslenska neysluvísitala, þá væri verðbólgan á Íslandi á þann mælikvarða 4,9% í apríl. En í Litáen, á sama tíma, sem er evruland og í Evrópusambandinu, er hún rúm 4,9%. Hún er 5,2% í Lúxemborg. Hún er 5,4% í Króatíu, þeir eru nýlega búnir að taka upp evru og verðbólgan hækkar. Það er það sem gerist í fátækari löndum þegar evran kemur. Í Búlgaríu er hún 6% og í Rúmeníu 9,5%.

Allt þetta eru þetta Evrópusambandslönd. Allt saman. Með öðrum orðum: Það erum við sjálf sem getum mótað okkar eigin efnahagsstefnu með peningastefnu. Við getum tekið á þessu. Það var það sem ríkisstjórnin ætlaði að gera. En afraksturinn er núna, tæplega einu og hálfu ári eftir að hún tók við, hærri stýrivextir, minni hagvöxtur, meira atvinnuleysi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: