
Stjórnmál
Stefán Pálsson skrifaði:
„Hugmynd fyrir fjármálastöðugleikaráð: hvernig væri að banna hagfræðingnum á fjármálaráðherrastóli að mæta í viðtöl og hugsa upphátt?Á Íslandi hefur verið nánast algjör pólitísk samstaða um það – þvert yfir sviðið – að atvinnuleysi sé ólíðandi og markmiðið nánast full atvinnuþátttaka. Fyrir vikið hafa allir íslenskir stjórnmálaflokkar verið hálf-Keynesískir í sinni efnahagsstefnu.
Þetta viðtal við Daða Má er algjört lestarslys. Það kallast hins vegar á við annað viðtal við hann fyrir helgi þar sem hann var líka að fabúlera um að atvinnuleysi sé í raun ekkert skammaryrði og að í Bandaríkjunum hafi menn litlar áhyggjur af slíku þar sem vinnuaflið færi sig bara landshorna á milli eftir þörfum!
Ég skal viðurkenna að ég átti ekki von á því að ríkisstjórn með Samfylkingu og FF innanborðs yrði fyrsta harða and-Keynesíska stjórnin með það eina efnahagsplan að skila hallalausum fjárlögum – en lengi skal manninn reyna.e.s. Hvað er eiginlega málið með lýsinguna og draumkennda filterinn?“