Óli Björn Kárason, fyrrum þingmaður, skrifar grein í Mogga dagsins. Hér fara tveir góðir kaflar úr grein Óla Björns:
„…íþyngjandi ríkisskuldir og ófjármagnaðar lífeyrisskuldir.“
„Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um miklu meira en það hvort við Íslendingar ætlum að senda nokkra embættismenn til Brussel til að kanna stöðuna, „kíkja í pakkann“ og sjá „hvað sé í boði“. Hún snýst um hvort við treystum okkur til að halda áfram sem sjálfstæð þjóð í nánu samstarfi við Evrópu en jafnframt frjáls til að sækja tækifæri um allan heim.
Öllum má vera ljóst hvað felst í því að ganga til liðs við Evrópusambandið. Pakkinn er öllum opinn og Evrópusambandið hefur aldrei reynt að fela innihald hans. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu er ósk um að fá pólitískt umboð til að hefja að nýju viðræður við Evrópusambandið með það að markmiði að Ísland gangi inn í sambandið með umfangsmiklu framsali á fullveldi. Enginn sækir um aðild að félagsskap áður en búið er að „kíkja í pakkann“ og afla sér nauðsynlegra upplýsinga um „hvað sé í boði“. Já er stuðningsyfirlýsing við að Ísland gerist aðildarríki að ríkjasambandi sem glímir við djúpstæðan efnahagslegan vanda, stöðugt lakari samkeppnishæfni, íþyngjandi ríkisskuldir og ófjármagnaðar lífeyrisskuldir.“
„Við verðum undirseld evrópskri héraðshyggju…“
Og seinna í greininni segir:
„Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inni í tollabandalagi og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel. Við verðum undirseld evrópskri héraðshyggju, þar sem sérhagsmunir fjölmennustu ríkjanna og öflugra hagsmunaaðila ráða för.
Heimurinn er hins vegar stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtur, fólksfjölgun og nýir markaðir verða á næstu áratugum að verulegu leyti utan Evrópu. Bandaríkin verða áfram efnahagslegt og tæknilegt stórveldi. Asíuríki sækja fram. Norðurslóðir fá aukið efnahagslegt og hernaðarlegt vægi í framtíðinni.
Tækifærin blasa við og við Íslendingar, öðrum þjóðum fremur, þurfum frelsi til að nýta þau á okkar forsendum.“
Alla grein Óla Björns Kárasonar má lesa í Mogga dagsins.