Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:
„Af framkomu ríkjandi stjórnvalda í Bandaríkjunum gagnvart Kanada, Suður-Kóreu, Japan, Danmörku, Indlandi og öðrum gömlum bandalagsríkjum blasir við að þessi stjórn stendur ekki við gerða samninga, virðir ekki skuldbindingar eða alþjóðalög, fyrirlítur innilega og opinskátt evrópskar lýðræðisþjóðir.
En þetta snýst ekki bara um karakterbresti Trumps þó ærnir séu. Um þessar mundir eru fimm ár liðin frá smánarlegri brottför Bandaríkjamanna frá Afganistan þegar þeir skildu bandamenn sína þar eftir í klóm talibana – fóru bara og brugðust öllum sínum skyldum og skuldbindingum, gáfust upp á því sem þeir höfðu hafið sjálfir. Þetta var í tíð Biden-stjórnarinnar.
Á sínum tíma fóru þeir líka héðan án þess að taka til eftir sig og skildu eftir sig fullt af drasli og geislavirka kakkalakka upp um alla veggi. Við skulum ekki fá þá aftur hingað. Það er sama hvaða stjórnvöld eru þar ríkjandi, við getum ekki treyst Bandaríkjamönnum fyrir vörnum landsins, fjöreggi okkar.“