- Advertisement -

Hvert ríki heldur öllum sínum auðlindum

Evrópusambandslöndin fylgja sameiginlegum reglum, en hvert ríki heldur öllum sínum auðlindum. Ísland tapar ekki fiskimiðunum og græðir ekki finnska skóga eða námur í Póllandi.

Benedikt Jóhannesson.

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, skrifaði:

„Davíð Þór Björgvinsson er fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og háskólaprófessor skrifaði nýlega áhugaverða grein um auðlindamál Evrópusambandsins. Hér á eftir tilgreini ég nokkra punkta úr grein Davíðs, en einmitt svona efni þyrftum við að fá meira af, því það er afar mikilvægt að farið sé með rétt mál um Evrópusambandið, en hvorki dylgjur ná rangfærslur.

Aðalatriðið er þetta: Evrópusambandslöndin fylgja sameiginlegum reglum, en hvert ríki heldur öllum sínum auðlindum. Ísland tapar ekki fiskimiðunum og græðir ekki finnska skóga eða námur í Póllandi.

  • Aðildarríki ESB halda forræði yfir náttúruauðlindum sínum. Þau ákveða sjálf eignarfyrirkomulag, hvort auðlindir eru nýttar og með hvaða hætti. Sérhvert ríki hefur rétt til að stjórna, nýta og ráðstafa náttúruauðlindum innan síns yfirráðasvæðis í þágu þjóðarinnar.
  • ESB getur sett reglur um atvinnustarfsemi sem byggist á nýtingu auðlindanna. Þar koma meðal annars til reglur um innri markaðinn, samkeppni, frjálst flæði, umhverfisvernd og matvælaöryggi. Ísland lýtur nú þegar stórum hluta þessara reglna vegna EES-samningsins.
  • Helsti munurinn við aðild væri því ekki nýtt regluumhverfi heldur að Ísland fengi beina aðkomu að mótun reglnanna og ákvörðunum innan ESB.
  • ESB getur almennt ekki skyldað ríki til að nýta ákveðna auðlind. Það getur til dæmis ekki ákveðið að Ísland byggi virkjun, leggi raforkusæstreng eða heimili laxeldi. Slíkar grundvallarákvarðanir væru áfram íslenskar.
  • Sjávarútvegur er helsta undantekningin frá almennu reglunni. ESB fer með sameiginlegt ákvörðunarvald um varðveislu fiskistofna innan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar, þar á meðal heildarafla og skiptingu hans milli ríkja. Hvert ríki ákveður síðan sjálft hvernig sínum aflaheimildum er ráðstafað innanlands.
  • Sérstaða íslenskra fiskistofna gæti gefið möguleika á sérlausnum. Stór hluti aflans hér kemur úr staðbundnum stofnum, og því gætu skapast forsendur fyrir sérlausn í aðildarviðræðum, þótt slíkt væri háð pólitískum samningum. Lögfræðilega er ekkert því til fyrirstöðu.
  • Í landbúnaði, fiskeldi og orkumálum yrðu íslenskar auðlindir áfram undir íslensku forræði. ESB-reglur gætu hins vegar haft áhrif á hvernig atvinnustarfsemi á þessum sviðum er rekin. Í orkumálum halda ríkin sérstaklega ákvörðunarvaldi um orkugjafa og nýtingu eigin orkuauðlinda.
  • Meginniðurstaðan er því að ESB-aðild myndi ekki færa ESB eignarráð yfir íslenskum auðlindum. Ísland myndi áfram ráða auðlindunum sjálfum en deila ákvörðunarvaldi með ESB um ýmsar reglur sem varða nýtingu þeirra og atvinnustarfsemi í kringum þær.“

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: