„Hvað er það svo sem Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir samþykkja ásamt öðru framáfólki Vesturlanda með aðgerðaleysinu?“
Viðar Heinsson bókmenntafræðingur skrifar eftirtektaverða grein á Vísi. Miðjan hefur valið hluta greinarinnar til birtingar. Hér er hægt að lesa greinina í heild.
…brottrekstur úr Sameinuðu þjóðunum…
„Nú er svo komið að siðferðlegt og hugmyndalegt skipbrot Vesturlanda er algjört og birtist í pólitísku vanmætti. Almenningur um allan heim mótmælir morðæðinu á Gaza kröftuglega en það kemur fyrir ekki, því vestræn stjórnvöld aðhafast ekkert, en hafa uppi fögur orð að vanda. Þó er þetta morðæði hreinræktað afkvæmi vestrænnar þjóðernis- og nýlendustefnu og af þeim sökum á ábyrgð þeirra. Hvort eitthvað er meint með ótal fögrum orðum, ályktunum og yfirlýsingum, á borð við fálmandi mjálm utaríkisráðherra í kvöldfréttum sjónvarps, skiptir ekki minnsta máli. Orð ráðherrans væru hlægileg ef málið væri ekki jafn alvarlegt og raun ber vitni. Ekkert hefur áhrif nema beinar aðgerðir: viðskipta- og vopnasölubann, sniðganga (sem aðgerðasinnar standa fyrir af dugnaði), bann við komu Ísraelskra ferðamanna, slit á stjórnmálasambandi, útilokun frá alþjóðasamstarfi (ekki síst á sviði menningar og íþrótta), brottrekstur úr Sameinuðu þjóðunum og stuðningur við kæru til Alþjðaglæpadómstólsins. Aðgerðaleysi íslenskra og annarra vestrænna stjórnvalda er fyrirlitlegt, Ísland hefur ekki einu sinni gengið í lið með Haag hópnum svokallaða sem reynir þó að grípa til aðgerða.
Fái ofbeldið að halda áfram…
Í ofanálag er hugmyndin um tveggja ríkja lausn hrein klisja sem hver étur upp eftir öðrum með slefi og öllu. Eina lausnin er eitt lýðræðisríki þar sem allir hafa jafnan rétt, Palestínumenn og Gyðingar af öllum trúarbrögðum en til þess þyrfti að binda endi á þann banvæna og rasíska síonisma með tilheyrandi aðskilnaðarstefnu sem ríkt hefur. Það er hlálegt að þessi hugmynd er náttúrlega í góðu samræmi við þær lýðræðishugmyndir sem Vesturlönd stæra sig af en framkvæma ekki nema eftir hentugleikum.
Siðferðilegt og menningarlegt skipbrot Vesturlanda er skelfilegt. Það sýnir ekki aðeins djúpstætt vanmætti gagnvart hreinræktuðu þjóðarmorði og þjóðernishreinsun, botnlausri grimmd, afmennskun og kvalalosta. Það sýnir svart á hvítu að undirstöðurnar sem við teljum samfélag okkar og menningu byggjast á eru að bresta. Það er engin leið til baka, en það er enn hægt að stöðva þennan hrylling. En ef svo heldur fram sem horfir óttast ég að engin fær leið sé fram á við heldur, önnur en í átt að frekara ofbeldi og afmennskun. Ástandið er svo alvarlegt að göfugar áhyggjur af svokölluðu akademísku frelsi verða hlægilegar. Frelsishugmyndir mega sín lítils gagnvart afmennskandi ofbeldi sem fær að vaða uppi óáreitt. Því óáreitt er það enn af stjórnvöldum sem mjálma fálmandi og raddir menningar- og menntageirans eru strjálli og lágværari en hægt er að sætta sig við. Fái ofbeldið að halda áfram að vera jafnóáreitt verður það einfaldlega smátt og smátt viðurkennt, enda praktíserað af æ fleiri svkölluðum þjóðhöfðingjum. Og þá gleyma æ fleiri akademíkerar líklega frelsishugsjónunum og fara að einbeita sér að því að þóknast þeim sem ráða.
Við hversdagsfólkið getum ekki litið undan lengur.
Hvað er það svo sem Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir samþykkja ásamt öðru framáfólki Vesturlanda með aðgerðaleysinu? Rúmlega 62.000 manndráp staðfest en talið er að tugir þúsunda séu grafin undir rústum. Af þessum 62.000 eru hátt í 19.000 börn og nærri 10.000 konur. Og samkvæmt nýjustu uppljóstrunum upp úr opinberum gögnum í Ísrael eru um 83% fallinna óbreyttir borgarar þótt þarlend stjórnvöld reyni stöðugt að ljúga öðru. Hátt í 160 þúsund manns eru limlest, og ekki þarf að fletta fjölmiðlum lengi til að rekast á myndir og frásagnir af hræðilega limlestum og bækluðum börnum. Um 1600 heilbrigðisstarfsmenn hafa verið myrtir og vel á þriðja hundrað blaðamanna eða fjölmiðlafólks og löngu orðið ljóst að þetta fólk er markvisst haft að skotmarki. Ekkert lát er á vopnasölu Vesturlanda til Ísraels svo hægt sé að halda uppi fjörinu.
Afleiðingarnar í nærmynd á bak við tölurnar: Litla stúlkan með vatnsbrúsann sem sprengd var upp, sundurskotin lík á sjúkrahúsi, fljúgandi lík og útlimir, hungurmorða börn, sveltandi fólk með tóm matarílát, hrunin hús, skotgöt á tjöldum, fólk á flótta undan sprengingum, grátandi fólk með barnslík í fanginu, fólk grafið látið og lifandi úr rústum, skurðaðgerðir á sjúkrahúsgólfi, jafnvel án deyfingar – við lítum undan í hryllingi en megum það samt ekki, því við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þetta. Á meðan malar síoníska áróðursvélin. Það verður að liggja milli hluta hvort stjórnvöld skilja samhengið eða hvort þau vilja það ekki. Við hversdagsfólkið getum ekki litið undan lengur. Almenningur verður að þrýsta á þau af öllum lífs og sálar kröftum.“