- Advertisement -

Ásmundur segist ekki komast að

„Þar ganga fremst­ir í fylk­ingu vinst­ris­innaðir fjöl­miðlar, pírat­ar allra flokka og öfga­menn á vinstri vængn­um.“

Ásmundur Friðriksson.

„Það eru nokk­ur ár frá því að Rík­is­út­varpið og aðrir fjöl­miðlar á vinstri vængn­um „slaufuðu“ mér vegna umræðu um hæl­is­leit­end­ur. Það gerðu auðvitað fleiri og er ég enn minnt­ur á yf­ir­lýs­ing­ar sumra flokks­fé­laga minna af sama til­efni. Þetta gerðist í kjöl­far varnaðarorða minna um óhefta fjölg­un hæl­is­leit­enda í land­inu. Þrátt fyr­ir það var fjöldi þeirra á þeim tíma lík­lega um þriðjung­ur þess sem síðar varð. Hann er löngu orðinn óviðráðan­leg­ur fyr­ir lítið sam­fé­lag á Íslandi. Á þeim tíma kallaði ég eft­ir því að bak­grunns­skoðun færi fram á þeim sem hingað kæmu og að við gætt­um ýtr­ustu varna við landa­mæri lands­ins,“ segir í nýrri Moggagrein eftir Ásmund Friðriksson þingmann.

„Það var og er vitað að til lands­ins streyma skipu­lagðir hóp­ar und­ir merkj­um hæl­is­leit­enda til að stunda hér man­sal og aðra skipu­lagða brot­a­starf­semi. Þrátt fyr­ir viðleitni til að efla landa­mæra­eft­ir­lit og lög­gæslu dug­ar það hvergi nærri til. Lög­regl­an er hundelt í störf­um sín­um þegar koma á fólki úr landi sem hef­ur fengið synj­un á hæl­is­um­sókn á öll­um stig­um, jafn­vel fyr­ir dóm­stól­um. Þar ganga fremst­ir í fylk­ingu vinst­ris­innaðir fjöl­miðlar, pírat­ar allra flokka og öfga­menn á vinstri vængn­um,“ skrifar Ásmundur.

Síðar í greininni stendur:

Ásmundi hefur verið boðið að koma í viðtal á Samstöðinni.

„Þetta er fólkið sem er í liði með Reykja­vík­ur­borg sem skýt­ur skjóls­húsi yfir og send­ir ein­kenni­leg skila­boð til þjóðar­inn­ar um van­v­irðingu við Aust­ur­völl og ná­grenni hans. Aust­ur­völl sem geym­ir stytt­una af Jóni for­seta, Dóm­kirkj­una og Alþing­is­húsið. Hér má ekki gleyma þætti vinst­ris­innaðra fjöl­miðla sem flytja dag­leg­ar frétt­ir úr búðunum á Aust­ur­velli, en birta ekki upp­lýs­ing­ar um ein­stak­linga sem þar halda til. Er þeim þó í lófa lagið að afla sér slíkra upp­lýs­inga.

Rík­is­út­varpið og aðrir vinst­ris­innaðir fjöl­miðlar stjórna umræðunni í land­inu. Meðal ann­ars með því að slaufa ein­stak­ling­um sem ekki eru í náðinni en hafa frá upp­hafi kallað eft­ir vandaðri vinnu­brögðum og var­kárni í út­lend­inga­mál­um. Á dög­un­um var hæl­is­leit­anda, sem er tal­inn vera liðsmaður ÍSIS, vísað úr landi. Ábyrgð fjöl­miðla er mik­il nú þegar raun­veru­leik­inn kem­ur aft­an að okk­ur. Von­andi líta þeir til ná­granna­landa okk­ar og láta af þögg­un og ófræg­ing­ar­her­ferðum í garð þeirra sem er sann­ar­lega annt um ís­lenskt sam­fé­lag. Von­andi er það ekki um sein­an,“ skrifaði Ásmundur.

Ég hef boðið Ásmundi í viðtal á Samstöðinni á morgun. Bíð eftir svari.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: