Fjölmiðlar: Athygli vakti í fréttatíma Sýnar í kvöld að utanríkisráðherrann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, var gestur í myndveri í hátt í tuttugu mínútur.
Ekki síður að Telma Tómasson fréttalesari var ein frá fréttadeildinni sem virðist hafa verið á fréttavakt. Nánast allur fréttatíminn fór í fréttir og samtal Telmu og Þorgerðar um innrás Bandaríkjaforseta og hans kóna í Venezúela.
Fréttatíminn var semsagt mjög sérstakur. Hvers vegna hlýtur að skýrast í kvöld.