- Advertisement -

Morgunblaðið og Samfylkingin

„En vandinn er sá að innan ríkisstjórnarinnar er ekki raunverulegur áhugi á að takast á við og leysa erfið mál. Það er einfaldlega of erfitt að mati þeirra sem þar ráða för. Og viðhorf Samfylkingarinnar til slíkra verkefna kom ágætlega fram í borgarstjórn þegar meirihlutinn kynnti hagræðingaráform sín. Þá voru viðbrögð oddvita Samfylkingarinnar eins og við var að búast, hann mótmælti áformunum og fann þeim allt til foráttu, jafnvel hvernig að þeim væri staðið þó að hann hefði sjálfur átt sæti í hagræðingarhópnum,“ segir í Reykjavíkurbréfi Moggans.

Og áfram:

„Þessi viðbrögð sýna ágætlega hvers vegna svo mikilvægt var að skipta út í borginni og gefa Samfylkingunni langt og gott frí. Sá flokkur hefur sýnt að hann ræður ekki við að takast á við raunveruleg verkefni sem fylgja því að taka ábyrgð og stjórn á sveitarfélögum eða í landsmálum. Honum fer betur að gagnrýna úr minnihluta og ætti að helga sig því þar til hann verður ef til vill stjórntækur með auknum aldri og þroska. Það er að minnsta kosti ekki hægt að útiloka, því að ýmsir systurflokkar hans erlendis hafa sýnt að þeir skilja þá ábyrgð sem völdunum fylgir, þó að þar séu að vísu líka til mörg dæmi um hið gagnstæða, ekki síst þó í þeim flokki sem Samfylkingin samsamar sig helst við, Verkamannaflokkinn breska í seinni tíð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: