- Advertisement -

Bankar: Bjarni og Benedikt eru ósammála

Meðan Bjarni Benediktsson forsætisráðherra telur enga sýnilega ástæðu til að rannsaka frekar sölu ríkisins á Landsbankanum, segist Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra að rannsókn á sölunni þurfi að fara fram.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, spurði Benedikt á þingi fyrir skömmu  hvort ekki sé ástæða til að ljúka rannsókn á þessu ferli þannig að við fáum allt fram um þetta mál sem hefur hvílt eins og mara á þjóðinni?

Svar Benedikts var stutt og ákveðið: „Svar mitt er einfalt: Jú, það er ástæða til að ljúka rannsókn á þessu ferli.“

Síðar sagði Benedikt, þegar Katrín spurði meðal annars hvort hann telji ástæðu til að bíða með að ráðast í frekari sölu á hlut ríkisins í bönkunum þar til slíkri rannsókn hefur verið lokið:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ég get svarað þingmanninum heils hugar: Þetta ferli verður að vera opið, það verður að vera gagnsætt, við verðum að eyða tortryggninni í kringum bankana.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: