
Þórður Snær Júlíusson: Stórútgerðin og fylgitungl hennar segja leiðréttingu veiðigjalda vera brot á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, að hún hagnist ekki óhóflega og borgi raunar þegar allt of mikið til samfélagsins. Það sé einfaldlega ekkert svigrúm til að borga meira. Ríkisstjórnin, sem fer með eignarhaldið á auðlindinni fyrir hönd þjóðarinnar, er á annarri skoðun og byggir það á staðreyndum úr raunheimum. Þjóðin sem kaus ríkisstjórnina til valda er henni sammála. Nú þarf að anda í kviðinn, standa af sér hræðsluáróðurinn og klára málið. Í eitt skipti fyrir öll.
Fyrirsögnin er Miðjunnar.
Þú gætir haft áhuga á þessum