- Advertisement -

Bjarni leggst á sveif með þjóðarmorðingjum

Kristinn Hrafnsson:

Bjarni hefur nú sett Íslendinga á lista hinna viljugu þjóða sem hjálpa Ísraelum með beinum hætti að minnast eigin helfarar með því að fremja þjóðarmorð.

Um leið og Alþjóðadómstóllinn skikkar Ísraela til að að hætta að myrða börn og tryggja mannúðaraðstoð til Gaza bregðast þeir við í áróðursskyni með ásökunum um að 12 einstaklingar af þrettán þúsund starfsmönnum UNRWA á svæðinu hafi átt aðild að uppreisninni 7. október.

UNWRA er stofnun Sameinuðu þjóðana og hefur haldið lífinu í fólki á Gaza sem hefur búið við aðstæður fangabúða vegna aðgerða Ísraela í hálfan annan áratug. Stofnunin brást strax við þessum ásökunum af festu, viku þeim frá störfum sem nefndir voru og hófu rannsókn á málinu með yfirlýsingum um að þeir myndu sæta ábyrgð, ef ásakanirnar reyndust sannar.

Það að Vestræn ríki sem fylgja fasistastjórn Ísraels að málum skuli bregðast við með því að frysta öll framlög til UNRWA er ógeðsleg ráðstöfun, sérstaklega með tilliti til þess að öll þjóðin á Gaza er við hungurmörk enda aðstæður á svæðinu nú þegar versta mannúðarkrísa heimsins. Þetta er það sem á ensku kallast „collective punishment“ eða hóprefsing – nákvæmlega sú aðgerð sem Ísraleski herinn er núna að stunda og er brot gegn aljóðasamningi um þjóðarmorð.

Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra hefur nú ákveðið að taka matarörðuna frá sveltandi börnum sem ekki er nú þegar búið að drepa í sprengjuárásum og kúlnaregni. Hann leggst á sveif með þjóðarmorðingjunum og aðstoðar þá við verkið. Bjarni hefur nú sett Íslendinga á lista hinna viljugu þjóða sem hjálpa Ísraelum með beinum hætti að minnast eigin helfarar með því að fremja þjóðarmorð.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: