- Advertisement -

Bónus oftast með lægsta verðið

Neytendur Bónus í Ögurhvarfi var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í átta verslunum á höfuðborgarsvæðinu fimmtudaginn 4. febrúar. Bónus var lægst í 81 tilviki, Krónan í 23 tilfellum og Fjarðarkaup 16. Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland Engihjalla eða í um þriðjungi tilvika. Munurinn á hæsta og lægsta verði vöru í könnuninni var frá 7% upp í 180%. Oftast var á milli 25-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði. Könnunin var gerð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum.

Af þeim 140 vörutegundum sem skoðaðar voru, voru flestar fáanlegar hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði eða 138 og hjá Iceland 131. Fæstar vörurnar voru fáanlegar hjá Krónunni eða 99 af 140 og Samkaup-Úrval átti 101.

Þegar rýnt er í meðfylgjandi töflu má sjá að verðmunur á milli lágvöruverðsverslana er í um þriðjungi tilvika um og undir 2 kr. hjá Bónus og Krónunni og einnig á milli Krónunnar og Nettó. Þannig kostar 200 ml. af NAN 1 barnamjólk 157 kr. hjá Bónus, 158 kr. hjá Krónunni og 159 kr. hjá Nettó. En þessa uppröðun á verði á milli þessara verslana má sjá á fleiri stöðum í könnuninni.

Mestur verðmunur var á ávöxtum og grænmeti

Þú gætir haft áhuga á þessum

Af þeim vörum sem skoðaðar voru var mestur verðmunur á ávöxtum og grænmeti, eða 31-180%. Mestur verðmunur var á frosnu mangó í bitum sem var dýrast á 1.396 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrast á 498 kr./kg. hjá Bónus sem er 898 kr. verðmunur eða 180%. Það var einnig mikill verðmunur á frosnum jarðaberjum sem voru dýrust á 1.140 kr./kg. hjá Hagkaupum Skeifunni en ódýrust á 415 kr./kg. hjá Bónus sem er 175% verðmunur.

Af ávöxtum og grænmeti var minnstur verðmunur var á íslenskri agúrku sem var dýrust á 656 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrust á 477 kr./kg. hjá Bónus sem er 31%. Af öðrum vörum má nefna að mikill verðmunur var á Lambhagasalati í potti sem var ódýrast á 245 kr. hjá Víði en dýrast á 359 kr. hjá Iceland sem gerir 47% verðmun.

Mikill verðmunur í öllum vöruflokkum

Af öðrum vörum má nefna að H.P. flatkökur voru ódýrastar á 129 kr. hjá Bónus en dýrastar á 169 kr. hjá Samkaupum-Úrvali, Hagkaupum og Iceland, sem er 40 kr. verðmunur eða 31%. Frosið pítubrauð frá Hatting var ódýrast á 259 kr. hjá Bónus en dýrast á 329 kr. hjá Iceland sem er 27% verðmunur.

Betty crocker chocolade fudge Brownie mix var dýrast á 498 kr. hjá Fjarðarkaupum en ódýrast á 395 kr. hjá Bónus sem er 26% verðmunur. Mikill verðmunur var einnig á 2 l. af Pepsí max sem var dýrast á 299 kr. hjá Samkaupum-Úrvali, Hagkaupum og Iceland en ódýrast á 195 kr. hjá Bónus.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á karamellu mysing 250 gr. sem var dýrastur á 305 kr. hjá Hagkaupum en ódýrastur á 286 kr. hjá Nettó sem er 7% verðmunur.

Sjá nánar á heimasíðu ASÍ.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: