Útgerð: „Brim, sem hagnaðist um tæplega 8,7 milljarða króna í fyrra, greiðir hluthöfum ríflega fjóra millj[1]arða króna í arð og býður þeim sem vilja að fá hann greiddan í evrum.“
Þetta er bein tilvitnun í frétt á baksíðu nýjasta tölublað fiskifrétta.
„Ástæðan er einföld,“ segir Kristján Þ. Davíðsson, formaður stjórnar Brims, um þennan val[1]möguleika fyrir hluthafa.
„Við erum með það mikið af tekjum í evrum að þetta er ein[1]faldlega til þægindaauka fyrir báða aðila; að þurfa ekki að vera að breyta evrum í krónur til að borga hluthöfum út arð í krón[1]um sem þeir ætla síðan að skipta aftur yfir í evrur. Þetta er bara hagræðingaratriði,“ útskýrir Kristján í Fiskifréttum. Samkvæmt lögum sé mönnum sé frjálst að eiga hvort heldur er evrur eða krónur.
Misjafnt milli ára
„Samkvæmt upplýsingum frá Ingu Jónu Friðgeirsdóttur, fjármálastjóra Brims, hefur þetta fyrirkomulag við útgreiðslu arðs verið við lýði hjá félaginu síðan 2021,“ hafa Fiskifréttir eftir Ingu Jónu fjármálastjóra.
„Það hefur verið mjög misjafnt milli ára. Þetta var til dæmis ekki mikið í fyrra en árið þar á undan var það töluvert,“ svarar Inga Jóna spurð um hversu mikið og hversu margir hluthafar hafi valið að fá arð sinn í evrum.
Útgreiðsla arðsins hjá Brimi er samkvæmt stefnu félagsins sem kynnt var í skráningarlýsingu 2014. Um er að ræða 2,1 krónu á hlut, sem eru 4.043 milljónir króna eða um 27,5 milljónir evra.
„Hluthafar sem hyggjast óska eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna félaginu það fyrir lok dags 15. apríl 2026 á þar til gert eyðublað,“ segir í tilkynningu frá félaginu þar sem farið er yfir niðurstöður aðalfundar sem fram fór 19. mars síðastliðinn.
