- Advertisement -

Ég er bara ég

„Fólki er of oft innrætt skömm fyrir að tala það mál sem það ólst upp við. Áfram Guðmundur Ingi!“

Jón Oddur Halldórsson skrifaði fína grein um Guðmund Inga Kristinsson ráðherra. Hér er pistillinn:

„Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ekki dæmigerðan bakgrunn manns sem gegnir ráðherraembætti. Hann er iðnmenntaður en í mínum huga er hinn dæmigerði ráðherra með háskólagráðu (líklegast í lögfræði) og fór kannski líka í Menntaskólann í Reykjavík. Mig grunar að fólk með slíkan bakgrunn sé ekki líklegt til að tala að öllu leyti þá íslensku sem það ólst upp við. Ekki fór ég í MR en fyrir löngu rakst ég á netinu á dreifiefni úr íslenskunámi hjá MR og ég man að þar kom m.a. eftirfarandi fram:

– Það skal segja ‘mig langar’ en ekki ‘mér langar’.
– Það skal segja ‘ég vil’ en ekki ‘ég vill’
– Það skal segja ‘einn lítri’ en ekki ‘einn líter’.

Þarna var löng runa af boðum og bönnum sem var ætluð nýnemum skólans. Það má kannski segja að þarna væri að verið senda nýnema skólans í gegnum „málfarslegan hreinsunareld“.

Guðmundur Ingi hefur að öllum líkindum ekki gengið í gegnum þennan „hreinsunareld“ og kemur inn í embætti ráðherra bara talandi þá íslensku sem hann ólst upp við og þá verður sumum bilt við. Íslenskan er nefnilega fjölbreyttari en það afbrigði hennar sem lengi hefur verið kennt að sé „rétt“. Ef svo væri ekki þyrfti MR ekki að dreifa til nýnema löngum lista með boðum og bönnum.

Ég vil segja að það er ekkert að því að hafa gengið í MR. Og það alls ekkert að því að vera háskólamenntaður. Og það er m.a.s. heldur ekkert því að vera lögfræðimenntaður! En ég verð samt að segja að mér finnst dásamlegt að maður eins og Guðmundur Ingi sé orðinn ráðherra. Maður sem talar bara sitt mál og skammast sín ekkert fyrir það. Fólki er of oft innrætt skömm fyrir að tala það mál sem það ólst upp við. Áfram Guðmundur Ingi!“

„Ég er bara eins og ég er og tala eins og ég er. Ég lærði iðnnám og ég ætla ekkert að reyna að vera eitthvað annað en ég er og ég vona að allir krakkar þarna úti átti sig á því að þau mega bara vera þau sjálf — eins og ég“

Guðmundur Ingi Kristinsson – Mennta- og barnamálaráðherra.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: