- Advertisement -

Eins vitlaust og nokkuð getur verið

Meðalhækkun kröfugerðarinnar fyrir atvinnulífið er 6,5 prósent á regluleg laun.

Guðmundur Gunnarsson skrifar:

Lægstu launin hækka úr 300 þúsundum í 425 þúsund á þremur árum, eða um 13,9 prósent á ári sem þýddi að lægstu laun hækkuðu um 41,7 prósent á samningstímanum. Fjármálaráðherra og hans félagar tóku sér hins vegar 42% hækkun afturvirkt.

Þeir sem eru með 900 þúsund á mánuði í upphafi samningstíma fá 4,6 prósenta hækkun launa á ári eða 13,9 prósent á þremur árum sem svarar til árlegra hækkana lægstu launanna í prósentum talið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það sem talsmenn SA og fjármálaráðherra halda fram um það sé verið að fara fram á sextíu til áttatíu prósenta hækkun þvert yfir atvinnulífið þá er það eins vitlaust og nokkuð getur mögulega verið. Meðalhækkun kröfugerðarinnar fyrir atvinnulífið er 6,5 prósent á regluleg laun.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: