- Advertisement -

Ekki hugsað til enda

Rætt var um fyrirhugaðan flutning Fiskistofu á Alþingi í gær. Akureyringurinn Brynhildur Pétursdóttir, Bjartri framtíð, sagðist vera fylgjandi því að flytja opinber störf út á land en sér finndist þessi framkvæmd hins vegar mjög vanhugsuð og eins og hún hafi hreinlega ekki verið hugsuð til enda. „Einnig langar mig þá að spyrja: Af hverju er ekki gert ráð fyrir flutningi Fiskistofu norður til Akureyrar  í fjárlögum ársins 2015?“
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra svaraði: „Ég þakka fyrirspurnina. Ég get reyndar ekki verið sammála hv. fyrirspyrjanda um að ekki hafi verið vandað til verksins. Svo má deila um hvort vinna eigi verkið í kyrrþey og til hlítar og klára það og tilkynna síðan með hvaða hætti það er gert og þá geti engir starfsmenn eða aðrir komið að verkinu. Mér fannst það ekki góð leið. Þess vegna voru áformin um þessa stefnumarkandi ákvörðun kynnt og sett á laggirnar verkefnisstjórn eins og áður hefur komið hér fram. Hún hefur síðan unnið tillögur um það hvernig þetta getur gerst sem best og ráðinn til þess verkefnisstjóri. Það skýrir af hverju ekki eru tillögur í fjárlögunum akkúrat núna. Við þekkjum ekki til hlítar hversu margir starfsmenn eru tilbúnir að fara og í þessari vinnu verkefnisstjórnarinnar sem fór fram eftir að fjárlagavinnunni var lokið gátu komið fram, og hafa komið fram, tillögur sem lúta að því að það kosti hugsanlega einhverja fjármuni á þessu ári en mjög líklega á næsta ári og síðan á árinu 2016. Hve miklir er ekki hægt að segja á þessu stigi vegna þess að verkefnisstjórnin og verkefnisstjórinn eru áfram að vinna að málinu í samstarfi við starfsmenn og forstjóra Fiskistofu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: