- Advertisement -

Engu stolið frá Þórólfi

Kári Stefánsson:

Að gefnu tilefni vil ég taka eftirfarandi fram:

Ég hóf samskipti mín við Pfizer í þeim tilgangi að reyna að útvega bóluefni án þess að ráðfæra mig við sóttvarnarlækni og svo sannarlega án þess að sækja til hans hugmyndir eða tillögur. Ég gerði það líka án þess að vita  að hann hefði sent tölvupóst til fulltrúa Pfizers á Íslandi. Það er því rangt hjá Þórólfi að ég hafi borið upp við stjórnendur Pfizer hugmyndir hans og að hugmyndir mínar hafi átt uppruna í hans. Það vill svo til að ég hef unnið í tæpan aldarfjórðung við að rannsaka alls konar sjúkdóma á Íslandi með því að nýta mér eiginleika þjóðarinnar sem einstakt þýði. Þar af leiðandi þurfti ég ekki að leita út fyrir Vatnsmýrina til þess að finna þessa hugmynd. Það er heldur ekki að undra að aðrir í okkar samfélagi hafi fengið þessa hugmynd út af því fordæmi sem má finna í vinnu Íslenskrar erfðagreiningar. Það sem gladdi mig hins vegar í samtali við Luis Jodar, sem er leiðtogi í bóluefnadeild Pfizers, er að hann var á undan mér að færa hugmyndina í orð. Það gleður mig líka að Þórólfur skyldi hafa komist að sömu niðurstöðu en hvorki ég né stjórnendur Pfizers vissum það þegar samtal okkar átti sér stað. Það hefur engu verið stolið frá okkar góða sóttvarnarlækni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: