- Advertisement -

Formaður SÁÁ býðst til að hætta

Svandís sagði nei þegar leitað var eftir meiri peningum.

Yfirlýsing frá formanni SÁA: „Atburðarásin í dag er hröð, staðan er hættuleg og þá þarf að taka erfiðar ákvarðanir og ég hef ekki vikið mér undan því. En enginn einstaklingur er mikilvægari en SÁÁ. Mikill óróleiki er innan samtakanna og ég hef því ákveðið að bjóðast til að stíga til hliðar sem formaður í þeirri von að forstjórinn dragi uppsögn sína til baka og finni betri lausn á rekstrarvanda samtakanna.“

Hér má lesa tilkynningu frá Arnþóri Jónssyni:

Undanfarin ár hefur rekstrarkostnaður á meðferðarsviði SÁÁ vaxið mjög. Kostnaður fer upp þótt afköst þjónustunnar standi í stað eða minnki jafnvel og ástæðan er ráðningar háskólamenntaðs starfsfólks til að mæta faglegum áherslum forstjóra sjúkrahússins Vogs. SÁÁ hefur mætt þessum stöðugt vaxandi útgjöldum með því að auka fjáraflanir sínar sem hafa vaxið samhliða útgjöldunum. Þetta jafnvægi milli vaxandi útgjalda á meðferðarsviði SÁÁ sem eigin fjáraflanir borga jafnharðan er auðvitað hættuspil. Stjórnvöld vita af þessari stöðu en láta það gott heita að SÁÁ starfi samkvæmt 12 ára gömlum þjónustusamningum.

Framkvæmdastjórn hefur undanfarin tvö ár gert áætlanir sem eiga að draga úr þessari spennu en stjórnendum á meðferðarsviði hefur gengið erfiðlega að halda sig innan ramma þeirra.

Svona er staðan þegar COVID-19 faraldurinn skellur á okkur með hættulegum veikindum, samkomubanni og almennu efnahagslegu hruni. Stór hluti af sjálfsaflafé SÁÁ hverfur í einni sviphendingu og eftir stendur SÁÁ með allt of dýran rekstur.

Um leið og þessi staða varð ljós var forstjóri Vogs upplýstur um að grípa þyrfti til aðgerða. Forstjórinn hafði í framhaldi samband við heilbrigðisráðherra og óskaði eftir fjárstuðningi en hafði því miður ekki erindi sem erfiði. Fyrir fram hefði mátt búast við því að stjórnvöldum rynni blóðið til skyldunnar í þessari ógnvænlegu stöðu og rétti SÁÁ hjálparhönd. Á uppreiknuðu verðlagi, allt frá árinu 1996, hafa SÁÁ samtökin greitt meira en 4 milljarða króna til heilbrigðisþjónustu meðferðarsviðs SÁÁ og skapað með því verðmæti og lífsgæði sem íslenskt samfélag nýtur góðs af í dag.

Atburðarásin í dag er hröð, staðan er hættuleg og þá þarf að taka erfiðar ákvarðanir og ég hef ekki vikið mér undan því. En enginn einstaklingur er mikilvægari en SÁÁ. Mikill óróleiki er innan samtakanna og ég hef því ákveðið að bjóðast til að stíga til hliðar sem formaður í þeirri von að forstjórinn dragi uppsögn sína til baka og finni betri lausn á rekstrarvanda samtakanna.

Ég heiti á stjórnvöld og almenning að standa með SÁÁ í þessum þrengingum.

Arnþór Jónsson,
formaður SÁÁ


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: