- Advertisement -

Fresta að leita læknis og sleppa lyfjakaupum vegna kostnaðar

Umræðan: Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, skrifaði:

„Ég hvet fólk eindregið til að kynna sér sláandi viðtal við Önnu Júlíusdóttur formann og Tryggva Jóhannsson, varaformann Einingar-Iðju, þar sem farið er yfir stöðu félagsmanna og niðurstöður nýrrar könnunar.

Niðurstöðurnar eru alvarlegar. Of margir neyðast til að fresta læknisheimsóknum, sleppa lyfjakaupum eða draga úr nauðsynlegri þjónustu vegna kostnaðar. Það er óásættanlegt í samfélagi sem vill kalla sig velferðarsamfélag.

Þetta eru sláandi niðurstöður og endurspegla því miður kjör verkafólks víða um landið – sérstaklega þeirra sem starfa á lægstu töxtunum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eining-Iðja er eitt af aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands og staða félagsmanna þar er áminning um að baráttunni fyrir mannsæmandi kjörum er hvergi nærri lokið.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: