- Advertisement -

Gæslan gat ekki hjálpað Færeyingum í leitinni þar sem flugvélin er í útleigu

Halldór Benóný Nellet fyrrum skipherra er ósáttur með stöðu Landhelgisgæsluna. Hann skrifaði:

„Það er eitthvað mikið að hér á landi með fréttamat sjónvarpsstöðvanna.

Í gær varð alvarlegt sjóslys við Færeyjar þegar fiskiskip sökk og tveggja sjómanna var saknað og mikil leit í gangi. Við Íslendingar gátum vitanlega ekki sjálfir aðstoðað við leit vegna þess að hin öfluga eftirlitsflugvél okkar TF-SIF er alltaf í Miðjarðarhafi vegna blankheita.

Ekki eitt orð um þetta í kvöldfréttum sjónvarpsstöðvanna í gærkvöldi heldur var meginfréttin um það þegar unglingar hentu eggjum í Alþingishúsið og þjarmað var af ókurteisi og offorsi að utanríkisráðherra. Bara minna á það líka að Færeyingar hafa ávallt stutt okkur í öllum okkar áföllum, nú síðast vegna Grindavík.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: